mánudagur, janúar 30, 2006

Afmælisbarn dagsins

Við Nói skemmtum okkur vel í dag. Ég bakaði vöfflur, Nói var kampakátur með það. Kíktum svo til ömmu og afa í spagetti boloneges og gjörsamlega borðuðum fyrir árið. Það var rosa stuð á Nóa Páli og frænkum hans Töru og Írisi. Það er alveg frábært að sjá hvað þau ná vel saman og hafa gaman að hvort öðru. Þetta var mjög góð helgi, róleg og hugguleg eins og öldruðum er sæmandi..he he. Hibb hibb húrreiiiii fyrir 31 árs afmælinu mínu.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

til hamingju með afmælið dúllan mín þú lítur út fyrir að vara ekki deginum eldri en 21!
luv ja
Beta