þriðjudagur, janúar 10, 2006

Ertu að verða náttúrulaus???

tonl_stÞað er margt sem maður gerir sér ekki grein fyrir og þá er oftast bara betra að þegja, hvað um það.
Við Bjarki fórum á tónleikana í Höllinni á laugard.kvöldinu s.l. Það var margt í Höllinni og kátt líka. Við vorum í stæði..eins og við séum einhverjir bílar! Fyrri helminginn af tónleikunum var ég alveg að drepast í bakinu, tók svo verkjalyf sem voru kannski ekki alveg að virka en svo þegar tónlistin varð meira áhugaverð fór þetta allt að koma. Ég var í heild ánægð með tónleikana, fannst sitthvað hér og þar hafa mátt fara betur. Sigurrós hefði mátt taka 1 lag, lagið sem þeir tóku var svo stutt að það jarlaði við heilt lag. Kannski var´etta break hjá þeim. Þó svo að þau séu löng hjá þeim þá er það engin afsökun. Ég held alla vega ekki að þeim yrði vísað í burtu af sviðinu þar sem prógrammið þeirra væri of langt! Kannski var það ekki málið og kannski erum þeir orðnir anti-náttúrsinnar:) Ég og örugglega margir aðrir vildi mjög svo sjá þá taka í hljóðfærin og fylla salinn af hrífandi hljómluffsum. Muggison, Björk, Damien Rice, Ghost digital, Rass, Ham og Bubbi stóðu sig vel á sviði. Það þýðir ekki að vera ekki með neitt show þegar fólk stendur í 4-5 klst. að bíða eftir skemmtun. Showið getur verið bara það að listamaðurinn komi með innlifun, eins og Damien eða útávið, sviðsframkoma o.þ.h. Bjarka fannst hálfasnaleg að sjá Ham aftur, aðallega Sigurjón Kjartansson, ég skil það að sumu leyti. Það er aðallega þessi ímynd sem þeir höfðu sem getur varla sagtst vera sú sama. Óttarr er samt alveg sami snillingurinn, sumir segja hann vera hálfgerða geimveru. Ég missti mig alveg þegar þeir spiluðu enda dauðfegin að heyra eitthvað sem maður þekkir svona vel. Maður spáir samt í því eins og með Björk, nú er hún svo hrikalega fræg að það nær ekki nokkurri átt. Hvernig getur svona listamaður staðið sig illa á sviði? Þegar maður er orðinn svona frægur, hefur þá fólk almennt enga skoðun á því sem listamaðurinn gerir eða er það bara þakklátt fyrir það sem það fær og heldur sínum skoðunum útaf fyrir sig? Þá fer maður að pæla út frá hlið listamannsins, what´s the fun in that?

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

mér finnst ógeðslega fyndið að Bjarki hafi skammast sín fyrir Ham, hahahahahaha;)