þriðjudagur, febrúar 07, 2006
Ráðhússýningin
Við fengum styrk fyrir þessa sýningu í Ráðhúsinu sem virðist nú sífellt fara lækkandi. Upphæðin var nú ekki mikil en við höfðum samt mjög mikil og góð not fyrir hana. Ég er nú að fara gera test af videoverkinu sem ég fékk hugmynd að..kannski dó smá áhugi hjá mér þar sem ég fæ kannski ekki skjávarpa eins og planið var. Ég verð eiginlega að hafa skjávarpa þar sem videoið á að koma út eins og málverk á vegg. Fúúking shiít, en svona er að vera ryk í augum stórra manna, bjúg á köldum vetrarmorgni, táfýla í glænýjum skóm..
sunnudagur, febrúar 05, 2006
Heimkoman frá Ítölsku Ölpunum...
Bjarki er í skýjunum með ferðina enda var rosalega flott veður og æðislegt færi. Hann tók fullt af flottum myndum, myndir í svona umhverfi geta varla klikkað. Það var svo frábært að fá hann heim, rosalega brúnn eftir alla útiveruna, brann næstum því 2. daginn, var svo gott veður. Guðrún kíkti til okkar í gærkvöldi, fengum okkur nokkra kokteila og svo stökk hún útí óvissuna. Við Bjarki sátum áfram og ræddum framtíðina undir vínsmökkun. Hann keypti alls konar vín-nýjungar, rauðvín, Grappa flösku með Che mynd framaná: "Grappa de el Che" (mjög vinsælt á Ítalíu) og einhverja vodkajarðarberjaguarana flösku.
Jazzzing groove á opnuninni
Opnunin var vel sótt og mjög vel heppnuð. Verkin taka sig flott út á staðnum. Sýningarskráin er mjög vegleg hjá honum, flott og er bæði á íslensku og ensku. Opnunin var mjög grand, það var virkilega gaman að upplifa þetta.
laugardagur, febrúar 04, 2006
Næsta sýning-opnun í dag
Bjarni opnar í dag mjög skemmtilega sýningu á Thorvaldsen. Hann var í F.B. í myndlistinni þar á sama tíma og ég og líka í L.H.Í. á sama tíma nema á öðru sviði, grafískri hönnun. Maðurinn er verulega skipulagður og veit alveg hvað hann vill. Conseptið hjá honum er mjög áhugavert, teygjanlegt og býður upp á marga möguleika fyrir listamanninn sjálfan og líka áhorfandann. Til að lesa meira um hans pælingar og starfsferil www.thorvaldsen.is , er undir dagskrá-sýningar.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)

