sunnudagur, febrúar 05, 2006
Heimkoman frá Ítölsku Ölpunum...
Bjarki er í skýjunum með ferðina enda var rosalega flott veður og æðislegt færi. Hann tók fullt af flottum myndum, myndir í svona umhverfi geta varla klikkað. Það var svo frábært að fá hann heim, rosalega brúnn eftir alla útiveruna, brann næstum því 2. daginn, var svo gott veður. Guðrún kíkti til okkar í gærkvöldi, fengum okkur nokkra kokteila og svo stökk hún útí óvissuna. Við Bjarki sátum áfram og ræddum framtíðina undir vínsmökkun. Hann keypti alls konar vín-nýjungar, rauðvín, Grappa flösku með Che mynd framaná: "Grappa de el Che" (mjög vinsælt á Ítalíu) og einhverja vodkajarðarberjaguarana flösku.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli