laugardagur, mars 18, 2006
föstudagur, mars 17, 2006
Tapas Bar
Ég set inn fl. myndir seinna. Er ógeesslega þreytt núna. Við hópurinn 33b fórum út að borða á föstud. kv. eftir Ráðhúsopnunina. Maturinn var mikill og fjölbreyttur og satt best að segja rosa góður í alla staði. Við urðum að stoppa þjónana af í kjötréttunum, vorum farin að óttast að fá aldrei eftirréttinn svo við díluðum við þjóninn að fá súkkulaðiköku í eftirrétt og ómygod, hún var pressious. Kvöldið heppnaðist rosalega vel, mikið pósað, hlegið og brainstormað. Ps, fengum afar gleðilegar fréttir, Magga okkar, glæsidrottningin er að fara bæta litlum listamanni í heiminn.







Á Hressó
sunnudagur, mars 12, 2006
The four fantastics










Við Gucci, Svava og Sylvía hittumst á Sólon laugardagskvöldið í rosa gellugeim. Við skáluðum að sjálfsögðu fyrir okkur allt kvöldið, svo æðislegar og langflottastar. Myndirnar segja sitt. Svava stakk síðan af að hitta mann, sennilega gullfallegan því annars yfirgæfi hún okkur ekki og henni er auðvitað fyrirgefið fyrir það. Erna beib, systir Gucci beib, mætti síðar á svæðið og tók við af Svövunni. Enduðum síðan á Vegamótum þar sem ég hálfpartinn flúði út vegna óþefs grunnhyggis og græðgis. Stemningin var of mikið slimy og mér fannst ég betur sett heima hjá mér hjá góða manninum mínum. Það koma stundum augnablik sem sýna manni hversu heppinn maður er að hafa traust, virðingu og væntumþykju.
laugardagur, mars 11, 2006
Myndablogg
Við gerðum voða myndarlegan aðalsmann útí garði í morgun. Snjórinn var svo blautur að allur garðurinn fór nánast með þegar við gerðum rúllurnar í snjókallinn. Bjarki stíleseraði andlitið, munnsvipinn, augun og skellti síðan á hann krullum sem minnti mann á aðalinn frá frönsku hirðinni á 15. og 16. öldinni og líka á endurnar á breska þinginu. Það er svo gaman að þegar fjölskyldan gerir eitthvað saman:) Seinna um daginn fórum við Nói Páll í 3ja ára afmæli til Stefáns hennar Betu. Þar var þröngt á þingi og mikill hasar enda bara strákar í afmælinu og sko ekkert gefið eftir. Nói valdi að gefa Stefáni herþyrlu sem gefur frá sér þyrluhljóð. Nói þufti að fá eitthvað líka og valdi hann Loft úr Bubba Byggi sem hann tók með sér í afmælið. Stefán og Nói skiptumst á leikföngum og það gerði mig voða stollta.
föstudagur, mars 03, 2006
NOKKRAR MENNINGARMYNDIR
Hér koma myndir frá sýningunni í Ráðhúsinu sem gekk svona blístrandi vel. Það er 1 mynd af verkin mínu sem er málverkið og videoið saman. Videoið sýnir sjálfa athöfnina við að borða og málverkið sýnir sæluvímuna og líkamlegu útkomuna. Þetta er í raun aðeins það augnablik sem einstaklingar geta fundið fyrir, að verða að borða svo þeim líði svo vel að það skíni í smá stund þar sem sársaukinn tekur hvort sem er við, því þá ekki að gera þetta bara almennilega? Magga var með video af skreið sem hún var með í svart hvítu, kom mjög svo dramatískt og sterkt út og undir spilaði hún lag frá gömlu tímunum..til eru fræ sem kærastinn hennar endurgerði í mjög ólíkri útgáfu og náði mjög góðu sambandi við videoið hennar. Beta var með hringlaga formið, ljósin og efnin sem héngu umkring. Tilfinningaríkt og delikant verk um depression og veikleika sem felst bak við tjöldin. Karen var með málverk sem sést í bakgrunni frá ljósakúlumynd Betu og því fylgdi 2 rosalega flott bókverk með átakalegum texta um manneskju sem líður ofboðslega illa og svo útskorinni bók með mannveru úr leir sem sat á grúfu föst í bókinni. Hún málaði yfir allan textann í báðum bókunum og límdi blaðsíðurnar saman, það þarf ekki að segja meir. Hrund var með fermingarrúmið og hljóðverk þar sem hún las inná teip tilvísun í texta frá AA,...í dag ætla ég..sem kom undan sænginni í rúminu. Arndís er stúlkan með sjónvarpið. Hún sýndi videoverk af grátandi konu og með voru headphones sem hún spilaði fossadyn á meðan hún grætur í videoverkinu. Pétur, var með mjög vísindalegt verk, nokkurs konar smásjá sem var sjónvarp með hljóði. Horfa átti í gegnum stækkunargler á videoið. Tækið var jafn stórt og lítil skólasmásjá. Hann sýndi videoverk frá Kárahnjúkum sem hann tók upp á digital ljósmyndavél innan úr helli. 































miðvikudagur, mars 01, 2006
33b í Ráðhúsinu over and out
Ráðhússýningin gekk vonum framar. Við vorum mjög ánægð með aðsóknina og fengum ágætis athyggli í útvarpi. Kom viðtal við 2 okkar á rás 2 minnir mig. Það kom mjög vel út. Ég lenti í ævintýri á opnunardeginum þar sem náungi kom upp að mér og vildi kaupa málverkið mitt, tók símann minn (he he, eins og hann hefði hrifsað af mér símann) og sagðist hringja á morgun en ég hef ekkert heyrt frá honum ennþá. Þetta gerist stundum en það er örugglega hægt að gera þetta öðruvísi næst..skrifa bara undir kaupsamninginn strax!!!!;) Heyrði að þetta hefði verið þekktur aðili í þjóðfélaginu og ætti víst að vera mjög svo pottþéttur en maður verður víst að taka því að þetta hafi ekki gengið í gegn að þessu sinni. Það að sýna á svona stað er mjög ólíkt öðru að því leyti að þangað kom alls konar fólk á öllum aldri, mikið af túristum, leikskólahópar o.s.frv.
Hópurinn vann mjög vel saman og ég hlakka mjög til fyrir næstu sam-sýningu okkar á 33b
Hópurinn vann mjög vel saman og ég hlakka mjög til fyrir næstu sam-sýningu okkar á 33b
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)














