









Við Gucci, Svava og Sylvía hittumst á Sólon laugardagskvöldið í rosa gellugeim. Við skáluðum að sjálfsögðu fyrir okkur allt kvöldið, svo æðislegar og langflottastar. Myndirnar segja sitt. Svava stakk síðan af að hitta mann, sennilega gullfallegan því annars yfirgæfi hún okkur ekki og henni er auðvitað fyrirgefið fyrir það. Erna beib, systir Gucci beib, mætti síðar á svæðið og tók við af Svövunni. Enduðum síðan á Vegamótum þar sem ég hálfpartinn flúði út vegna óþefs grunnhyggis og græðgis. Stemningin var of mikið slimy og mér fannst ég betur sett heima hjá mér hjá góða manninum mínum. Það koma stundum augnablik sem sýna manni hversu heppinn maður er að hafa traust, virðingu og væntumþykju.
5 ummæli:
Almáttugur hvað þú ert ávallt fögur!!
Kv.Íris á djúbbanum
Þvílík megabeib.........úlalala
Flottar myndir úr Ráðhúsinu líka fæ að kópera e-n tíma. Shjáumst bráðum
Takk Beibs, rosa myndaflipp hérna. Lýsingin var eitthvað sérstaklega góð..eða the fancy drinks. Ég ætla einmitt að bæta inn fl. myndum, voru svo margar góðar. Seinna um kvöldið, hélt nú ég hefði litið ógesslega vel út, sagði einhver gaur að ég væri 42 ára:)
Magga, með myndirnar, þá skrifa ég þær á disk, bæði frá opnuninni og líka matnum og skil eftir á vinnustofunni. Nú er'etta pís of keik, komin með ferðatölvu..vívívíví.
Íris,..til hamingju með afmælið um daginn. Ég sá myndir frá því og þú klikkar ekki á stemningunni, gítar ofcourse og það kallinn að djamma á hann. Sætur gaur by the way..skil afhverju þú fórnaðir 101 fyrir hann.
Þið eruð svo miklar skvísur.. minnir mig á góða djammið okkar í köben forðum daga.. væri nú alveg til í að fá ykkur í djamm hingað til mín.. *blink*blink*
Takk Sandra mín:* Fékk agalegann söknuð til þín um daginn, verð að plata ykkur girlz á kaffihús þegar ég kem í bæinn:)
Kv Irish landsbyggðarfrík:)
Skrifa ummæli