föstudagur, mars 03, 2006

NOKKRAR MENNINGARMYNDIR

Hér koma myndir frá sýningunni í Ráðhúsinu sem gekk svona blístrandi vel. Það er 1 mynd af verkin mínu sem er málverkið og videoið saman. Videoið sýnir sjálfa athöfnina við að borða og málverkið sýnir sæluvímuna og líkamlegu útkomuna. Þetta er í raun aðeins það augnablik sem einstaklingar geta fundið fyrir, að verða að borða svo þeim líði svo vel að það skíni í smá stund þar sem sársaukinn tekur hvort sem er við, því þá ekki að gera þetta bara almennilega? Magga var með video af skreið sem hún var með í svart hvítu, kom mjög svo dramatískt og sterkt út og undir spilaði hún lag frá gömlu tímunum..til eru fræ sem kærastinn hennar endurgerði í mjög ólíkri útgáfu og náði mjög góðu sambandi við videoið hennar. Beta var með hringlaga formið, ljósin og efnin sem héngu umkring. Tilfinningaríkt og delikant verk um depression og veikleika sem felst bak við tjöldin. Karen var með málverk sem sést í bakgrunni frá ljósakúlumynd Betu og því fylgdi 2 rosalega flott bókverk með átakalegum texta um manneskju sem líður ofboðslega illa og svo útskorinni bók með mannveru úr leir sem sat á grúfu föst í bókinni. Hún málaði yfir allan textann í báðum bókunum og límdi blaðsíðurnar saman, það þarf ekki að segja meir. Hrund var með fermingarrúmið og hljóðverk þar sem hún las inná teip tilvísun í texta frá AA,...í dag ætla ég..sem kom undan sænginni í rúminu. Arndís er stúlkan með sjónvarpið. Hún sýndi videoverk af grátandi konu og með voru headphones sem hún spilaði fossadyn á meðan hún grætur í videoverkinu. Pétur, var með mjög vísindalegt verk, nokkurs konar smásjá sem var sjónvarp með hljóði. Horfa átti í gegnum stækkunargler á videoið. Tækið var jafn stórt og lítil skólasmásjá. Hann sýndi videoverk frá Kárahnjúkum sem hann tók upp á digital ljósmyndavél innan úr helli. 2936191987632116121039333217

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ!! Gaman að sjá hann Finnboga hérna hjá þér.
Á svo ekki litla systir þín afmæli í dag (alla vega nálægt þessum degi ;-) )
Svo frétti ég af henni verðandi tvíburamömmu í heimsókn hjá þér um daginn, áttu ekki góðar myndir af henni síðan þá?? Hlakka ekkert smá til þegar hún verður búin að eiga.
Hafið það nú gott öll sömul.
Knús og kossar, Begga

Nafnlaus sagði...

Jú það var gaman að fá döggu í heimsókn, hún er rosa myndarleg. Það er náttúrulega típýskt að krílin séu í stærri kantinum..bæði stærri en gengur og gerist..he he.
Dagga þarf alltaf að gera allt með stæl. Það gæti huxanlega endað með að hún verði sett af stað. Finnbogi kom á sýninguna mína í Ráðhúsin og það var mjög frábært að fá hann...það er svolítið mikið langt síðan ég sá hann. Við vorum að koma inn núna úr snjónum og gerðum okkar fyrsta alvöru snjókall, ógesslega gaman. Hvernig er annars með Köben, eru þið að huxa um að búa þar áfram?