þriðjudagur, apríl 18, 2006

Dýýýýrlegt páskafríí

Varð bara að deila þessu með netperrunum. Þetta frí er búið að fara um mig alla sem strokustraumsvellíðan og unaðsaflétting og sæla. Ég er fullkomlega í jafnvægi, róleg róleg, alla vega miðað við fyrir frí. Tendamamma átti 54 ára afmæli á páskadag, mikil veisla þá, lambalæri og páskaegg í eftirrétt skolað niður með trufluðu kaffi. Við fjölskyldan fórum á Sólon og fengum okkur að borða, fórum á rúntinn og á leikvelli. Mikil fjölskyldusamvera og vinnustofuástundun, er mjög ánægð með þau mál.
Ég er einnig að vinna núna í vinnustofulógóinu sem ég set síðan utaná húsið, vinnustofuna okkar. Líklega spreyjað á en á alveg eftir að sjá til með það.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ elsku Sandra mín. Oh hvað ég er til í hitting fljótlega. Það verður reyndar mikið að gera hjá mér til svona 8 maí. Þá eru prófin búin hjá mér. Er komin í nett stress kast núna, hef ekki haft neinn tíma til að læra. Verð að spýta aðeins í lófana næstu 2-3 vikurnar. Langar svo oboboboboslega að hitta þig. Kveðja, Guðný mazzi ;o)

pensillinn sagði...

Likewise, svo til í að hittast. Það stóð til að hittast fimmtud.kv., í gærkv. en ég komst ekki. Ég verð með opnun á Energia 20. maí og bíð ykkur gellurnum ofcourse, vona bara að þið komið.

Nafnlaus sagði...

Sakna ykkar ótrúlega, en það var óheppilegur tími með hitting, allt crazy að gera hjá fólki sem er nottla skiljanlegt á þessum tíma.En ég panta ykkur í sveittan hitting næst þegar eg mæti í stórborgina:)

Kv.Íris (ekki massi)