laugardagur, apríl 22, 2006

Reiði

Ég er alltaf svo reið þessa dagana. Finnst fólk vera fífl. Ég er hrikaleg, alltof margt fer í taugarnar á mér. Það eina sem ég mýkist alveg við, það er að sjá Mótmælanda Íslands standa á götuhorninu við Langholtsveginn í nýstingskulda, kominn með parkison. Ég hugsa alltaf um það, hvað fái hann til að gera þetta dag eftir dag eftir dag. Fær hann sér að borða, tekur hann pásur, er honum kalt? Í dag sá ég hann labba útá götu, beint útí traffíkina, til að taka upp rusl sem var á götunni. Það hafði mikil áhrif á mig og ég verð að segja, þetta var það fallegasta sem ég hef séð lengi. Ég veit ég á ekki að eyða orkunni í umhverfið og láta það hafa áhrif á mig hvað annað fólk er að gera og hvernig það lifir sínu lífi. Ég veit að það er alveg jafn human og ég og finnst kannski það sama um margt og mér. Það er svo margt í þjóðfélaginu sem er óþarfi en samt hefur það náð að einkavæða almenninginn eins og hann leggur sig. Mig hungrar í hið hreina og beina, þar sem gömlu góðu gildin hafa eitthvað að segja og fólk taki sig til og hugsi stundum um náungann meira en sjálfan sig. Ég les grein í blaði um ferðaskrifstofu sem ráðleggur manni, kominn á ellilífeyrislaun, að tví-tryggja sig fyrir ferðina, forfallatrygging inní því. Hann lendir síðan í heilsufarslaka, fer til læknis og hann er þá hjartveikur og læknirinn ráðleggur honum að ferðast alls ekki. Hann fer þá með vottorð á ferðaskrifstofuna, þeir senda hann til Vísa þar sem hann borgaði ferðina með vísa, þeir neita að endurgreiða honum, segja að ferðaskrifstofan hafi átt að vita betur með að láta hann tvítryggja sig og segja að hann hefði vitað um heilsufarsástandið sitt fyrirfram?!!! Sá gamli fer með þetta í lögfræðing og fær útúr því 166 þús frá ferðaskrifstofunni af þeim 220 þús sem hann greiddi fyrir ferðina. Hann missti heilan mánuð í ellilifeyrislaun útaf þessu + að þurfa að standa í þessu. Ferðaskrifstofan hrósar síðan sjálfum sér fyrir að hafa greitt honum þessa upphæð tilbaka. Sögðust hafa gert þetta vegna þess að sá gamli hafi einfaldlega bara verið svo góður viðskiptavinur?!!!
Hvað er að þjóðfélaginu? Við erum að tala um smápeninga sem hann hafði þegar greitt, hvernig hefur fólk það í sér að fara svona með annað fólk, tala nú ekki um þegar það er minnimáttar og á sér lítið til varnar. Bjarki er andstæðan við mig, í öllu. Hann kippir sér ekki upp við neitt og lætur ekki svona hluti hafa áhrifa á sig. Ég væri til í að hafa smá af bæði þar sem ég vil ekki æsa mig yfir þessu og svo gerist ekki neitt því svona er bara lífið...eins og Bjarki segir svo oft:) Hvar endar þetta samt ef lífið er bara svona og á kannski eftir að versna með komandi kynslóð?

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég hugsa að þegar á botninn er hvolft er verst að velta sér uppúr mistökum og asnaskap sjálf síns og annarra. því meira sem maður lifir því flóknara sem allt er og það er lang þægilegast að vakna á hverjum degi fullur vonar um góðan dag framundan:)

pensillinn sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
pensillinn sagði...

Þið eruð miklir huxuðir hér, ég hef lært mikið af ykkur.
Hvernig líst ykkur á þetta orðatiltæki:
fífl er annars manns fagurfifill??