


Þá er showið hafið. Ég er í skýjunum með Bjarka þessa dagana. Hann er nú alltaf ótrúlegur en hann hefur reynst mér svo svakalega vel í öllu þessu stressi og stússi. Hann kemur mér sífellt á óvart. Hann kom með mér í gærkvöldi að hengja upp og við unnum frábærlega saman. Hann tók að sér að hanna boðskort fyrir vinnuna mína og allir urðu rosa hrifnir. Við erum bara gott teimi í svona hlutum. Hann hengdi meira að segja upp fyrir mig sýningu um daginn á Sólon, hafði aldrei gert þetta áður og varð fljótari en ég að því..og mjög vel gert líka..fékk mig aðeins til að hugsa minn gang..hehe. Mætingin á opnunina mína var í lakara lagi, var að vísu búin að heyra frá mörgum sem kæmust ekki vegna Júrovision og svo var mikið um veislur og þ.h. Vinnufélagarnir fá þó hrós, er bara ánægð með mætinguna hjá þeim. Ég hafði engan áhuga á þessari Júróvisíonkeppni þar sem við vorum ekki með. Þetta var alveg eins og í fyrra, maður fór í júrovísíon partý en var hálf glötuð stemmning þar sem við vorum ekki með og þá hafði maður engan áhuga á keppninni. Úrslitin komu klikkað á óvart í ár...Finnar vinna með þungarokkslagi!!! Þeir vinna ekki með naumindum heldur unnu frá upphafi keppninnar með miklum yfirburðum..hvað er að gerast? Rosalega góður endir á rosalega leiðilegri keppni.





8 ummæli:
Elsku Sandra
mínar hjartans hamingjuóskir með velheppnaða sýningu, verkin smellpassa þarna inn og njóta sín ekkert smá vel!
Bara spurning með að gera veggina svona í 33b?
Hefði viljað stoppa lengur í gær en 20 ára gaggóendurfundirnir biðu mín.Já vá kella bara gömul!!
Enn og aftur til lukku með sýninguna alveg svaka flott!
ps. Bjarki fær 12 stig frá mér!
hæ hæ
en og aftur til hamingju með sýninguna... flott sýning og þú ert snilldar málari... Og alltaf jafn gaman að hitta þig...
kveðja sallý
Takk æðislega stelpur fyrir falleg skilaboð:) Alltaf svo gott að fá hrós, gefur manni mikið boost. Hvað gerir maður nú næst?
Takk fyrir komuna stúlkur, stutt stopp eða ekki, bara gott að sjá vinaleg andlit.
Hefði svoho viljað koma ! Var hinsvegar í sveitinni að smíða glugga og setja þá í húsið :) knús til þín !!!
Halló!
Hefði nú trúlega ekki látið mig vanta ef ég hefði verið á svæðinu skal ég segja þér ;o)
Geri bara ráð fyrir því að þetta hafi verið flott hjá þér, eins og alltaf.
Hafið það nú gott á klakanum (sem stendur víst undir nafni þessa dagana)...
Kv. Begga & co.
Segi það sama og þær hér fyrir ofan.Hefði svo sannalega komið en var fyrir austan í góða veðrinu:-) (Böddi bró var að útskrifast)en er sýningin ekki enn uppi????
Jú sýningin er enn uppi og verður til 30. júní. Fékkstu ekki boðskortið, varstu kannsk fyrir austan þegar það kom? Endilega kíkja, væri svo gaman að deila þessu. Það er nú aðeins að hlýna hérna en ég er samt dauðfegin að smá kuldakast hefði komið, gaman að sjá geitungana stráfalla..he he. Mamma og pabbi eru í bænum núna, ætla að fara með þeim uppeftir á Energíu, fá okkur smá í gogginn og virða fyrir okkur sýninguna í leiðinni. Til hamingju með Bödda annars, hrikalega er drengurinn orðinn fullorðinn. Þetta er bara asnalegt!!
Hæbb geggjaða töff gella!!!!
Komst ekki á Laugardaginn en ætla að kíkja í næstu viku...en er búin að sjá myndirnar...þær eru svo klikkað flottar!!!
Kv. Lilja
Skrifa ummæli