föstudagur, júlí 21, 2006

Komin heim!!!

Ferðin var algjör draumur. Vakna á morgnana, fara út á svalir, maður þarf aldrei að klæða sig eitthvað. Allt er svo simple. Fá sér kaffi og nýbakað brauð og horfa á fólkið í sundlauginni. Líf alls staðar. Það er alltaf líka rosalega gaman að vera komin heim, rosalega glatað að vera ekki brúnni. Ég er svo fanatísk að það hálfa væri nóg. Ég ætlaði mér sko aldeilis ekki að brenna og bar á mig 30 vörn næstum allan tímann, og það oft á dag, aðrir voru bara heppnir að ég bar ekki á þá líka! Þegar um 5 dagar voru eftir fór maður að pæla í því hvað maður skæri sig út þarna á meðal hinna túristanna...he he. Varið ykkur, hvíta fjölskyldan er að koma. Það er svo margt sem mig langar að skrifa um en ætla nú um sinn bara að segja hæ og tjá mig um mikla hamingju yfir ferðinni og um leið fyrir þá sem eitthvað vita þá líður mér miklu betur, og takk fyrir kveðjurnar og vinaheit.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hó hó, fyrir þá sem eitthvað vita??? Á maður bara að giska ef maður veit ekkert?? Vona að það hafi ekki verið neitt alvarlegt að hjá þér sætan mín.
Knús og kossar frá bumbulínu frænku þinni í DK, Begga ;o)