Spennan hleðst upp fyrir næstu sýningu. Miklar strokur og ausandi tilfinningar
sunnudagur, ágúst 20, 2006
Menningarnótt
Menningarnóttin var óvenju menningarleg í sniðum þessa helgina þar sem engin ofurdrykkja átti sér stað. Fór á opnun hjá Aroni á Turpentie á föstudeginum, með Betu. Við hittum þar félaga okkar í 33b, Möggu og Pétur.Öflugur listamannahópur þar á ferð. Mættum á svæðið, sáum og sigruðum??? Sýningin var góð hjá Aroni. Það var boðið uppá tónlistaratriði, búin að gleyma hvað bandið heitir. Um kvöldið fór maður svo bara á vinnustofuna og málaði eins og spassi til hálf 4 Laugardagurinn var mjög fjölskylduvænn, löbbuðum í bæinn, hittum Matta og Snæju á Hressó. Nói Páll var bara hress, lá á gólfinu með bílinn sinn. Fórum á Carnegie Art Award sýninguna í Hafnarhúsinu. Málverkið er í sókn, svo er eitt víst. Sókn (meaning, ekkert nýtt, bara sókn=vinsældir). Aðallega var bara gaman að vera hluti af mannlífinu.



föstudagur, ágúst 18, 2006
miðvikudagur, ágúst 16, 2006
Support your local painter
föstudagur, ágúst 04, 2006
Myndir að austan
Hér koma loks nokkrar myndir frá Seyðó og Atlavík. Það jafnast ekkert á við sveitasæluna. Það var æðislegt að koma austur, fórum úr rigningunni í góða veðrið, spiluðum gólf á hverjum degi. Hittum Lilju rokkara, alltaf jafn sæt og hress. Kíktum á Lárurnar, aðalpleisið á Seyðó, á laugard.kv. Óla stóra systir, Elsa og Jóhann Breki komu í heimsókn yfir helgina. Mennirnir þeirra báðir á sjónum. Héldum grillveislu hjá Döggu, hún fékk engu ráðið um það þrátt fyrir að vera með littlu tvíburana og á barmi taugaáfalls. Nói Páll gjörsamlega elskaði Jóhann Breka sem er 11 mán. Léku sér saman án nokkurs alvarlegs vesens. Það er alveg merkilegt hvað hann er góður við lítil börn og finnst bara fínt að ég haldi á þeim, klappar þeim bara og segir ohh hvað hann er sætur. Fórum í Skaftfell, menningarmiðstöðina og kíktum á sýningu bræðranna Sigurðar Guðmundssonar og Kristjáns. Sigurður er minn al-uppáhalds íslenski listamaður. Maður sem hefur eitthvað að segja. Ég hrífst óendanlega af verkum hans og finnst hann einstaklega klár í að koma ákveðnum hugsunum og hugmyndum á framfæri. Ofaná það er hann mikill húmoristi sem mér finnst oft og sérstaklega í hans tilviki, brúa bilið á milli listarinnar og áhorfandans.

















fimmtudagur, ágúst 03, 2006
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)























