Hér koma loks nokkrar myndir frá Seyðó og Atlavík. Það jafnast ekkert á við sveitasæluna. Það var æðislegt að koma austur, fórum úr rigningunni í góða veðrið, spiluðum gólf á hverjum degi. Hittum Lilju rokkara, alltaf jafn sæt og hress. Kíktum á Lárurnar, aðalpleisið á Seyðó, á laugard.kv. Óla stóra systir, Elsa og Jóhann Breki komu í heimsókn yfir helgina. Mennirnir þeirra báðir á sjónum. Héldum grillveislu hjá Döggu, hún fékk engu ráðið um það þrátt fyrir að vera með littlu tvíburana og á barmi taugaáfalls. Nói Páll gjörsamlega elskaði Jóhann Breka sem er 11 mán. Léku sér saman án nokkurs alvarlegs vesens. Það er alveg merkilegt hvað hann er góður við lítil börn og finnst bara fínt að ég haldi á þeim, klappar þeim bara og segir ohh hvað hann er sætur. Fórum í Skaftfell, menningarmiðstöðina og kíktum á sýningu bræðranna Sigurðar Guðmundssonar og Kristjáns. Sigurður er minn al-uppáhalds íslenski listamaður. Maður sem hefur eitthvað að segja. Ég hrífst óendanlega af verkum hans og finnst hann einstaklega klár í að koma ákveðnum hugsunum og hugmyndum á framfæri. Ofaná það er hann mikill húmoristi sem mér finnst oft og sérstaklega í hans tilviki, brúa bilið á milli listarinnar og áhorfandans.









1 ummæli:
Flottar myndir, enda flott fjölskylda þarna á ferðinni!!!
Knús til ykkar frá útlöndum...
Kv. Begga
Skrifa ummæli