miðvikudagur, október 25, 2006
mánudagur, október 23, 2006
Airwaves smarewaves
Ég vil bara lýsa yfir óánægju minni á þessu systemi að bjóða aðeins passa á alla tónleikana í einu. Afhverju er ekki hægt að borga sig inná þá tónleika sem maður hefur áhuga á að sjá. Afhverju þarf ég að greiða pening fyrir öll hin böndin sem spila einhvers staðar annars staðar útí bæ á meðan ég horfi á tónleikana sem ég vil sjá. Við erum ekki gengin í ESB, er það nokkuð? Free will...yyy, hvar er einstaklingurinn í þessu öllu saman? Fjölskylduvænt??..nei, þetta er bara fyrir listamenn á listamannalaunum,listamenn á atvinnuleysisbótum, atvinnuleysingja, unglinga sem búa heima hjá mömmu og pabba, dópista sem kóka lókar sig til að byggja upp sitt auma sjálfstraust. Uss, jeg er vred. Alltaf hugsar maður, næst ætla ég sko að fara á Airwaves en viti menn, alltaf er manni gert erfitt fyrir með einhverju rugli eins og þessu..Ég veit um fullt af fólki sem langaði að fara en gat ekki leyft sér að kaupa 7000 króna miða fyrir 1-2 tónleika. Fullt af fólki t.d. á vini sem eru í einu af böndunum sem spila á Airwaves en geta ekki hugsað sér að borga þessa upphæð bara fyrir að sjá þá. Ég skil ekki afhverju kostar ekki bara 1500 inná hverja og eina tónleika og þá getur maður bara play along, hoppað á milli og fengið miklu meira út úr skemmtuninni án kúgunar. Maður gæti jafnvel orðið svo ánægður með tónleikana sem maður færi á að maður myndi fara á aðra og aðra..sem gæti orðið að enn meiri gróða í lokin. Ég veit þetta hentar mjög vel fyrir þá sem lifa og hrærast í þessum heimi, vinna ekki 150% starf og eiga fjölskyldu, en það er ansi mikið af þannig fólki sem hefur einmitt líka áhuga á svona hlutum. Ástæðan fyrir því að passarnir eru er líklega vegna minna vesens, hafa þetta einfalt og ESB legt, en ég vil bara hafa þetta eðlilegt og frjálst.
fimmtudagur, október 19, 2006
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)




