fimmtudagur, nóvember 16, 2006

Boðskort á vinnustofusýninguna



OPNUN 8. DESEMBER KL. 20:00-23:00, OPIÐ LAUGARD OG SUNNUDAG SÖMU HELGINA FRÁ 13-17
VEITINGAR Í BOÐI, JÓLAPÚNS, JÓLAKÖKUR, JÓLALISTAVERKABASAR..

ALLIR VELKOMNIR.

sunnudagur, nóvember 12, 2006

Vinnustofusýning 8. des kl 20:00

Nú verður, eins og hefð er orðin á vinnustofunni, haldin sýning í desember mánuði þar sem við höldum jólasýningu..sýnum listir okkar og bjóðum upp á lifandi músík, jólaglögg og fleira. Þetta er alltaf svo huggulegt hjá okkur svo ég mæli eindregið með að fólk mæti og láti sér líða vel með okkur. Öll verk eru til sölu og verður nóg í boði fyrir
listunnendur. Shitt, árið er að verða búið...er ekki kominn tími til að gera þá eitthvað öðruvísi?? Vinnustofan er að Skipholti 33b (v/hliðiná Saga Film, sama hús og hljóðfærahúsið og Bingó Vinabær), 105 Rvk

mánudagur, nóvember 06, 2006

sunnudagur, nóvember 05, 2006

pönk-kvöld

Ég hef mikið dálæti á pönki. Núna er ég að hlusta á snilldarpönk, japansk band melt bananas. Það er nefnilega fyndið þar sem ég var með það á heilanum fyrir mörgum árum síðan að stofna japansk pönk band, og ég veit sumir muna vel eftir því:)
Í gær var æfing nr. 2 haldin á vinnustofunni minni. Fyrsta æfingin var fyrir u.þ.b. ári síðan. Með þessu framhaldi kemur mjög bráðlega út plata, stútfull af óheiðarlegu pönki.
Æfingin var alveg klikkuð, höfum fengið 2 nýja meðlimi frá því á 1. æfingunni. Kata kom þarna sterk inn, frábær tónlistarspíra. Einnig Sveinn sem gerði góða hluti. Næstum því of góður fyrir minn smekk en get ekki neitað því að hann var ansi nauðsynlegur.
Hlakka mikið til næstu æfingar. Verst að mottó bandsins er að spila ölvaður og það gengur víst ekki hvaða kvöld sem er..he he. Annað mottó er að ef einhver ské kunni að vera orðinn of fær á ákveðið hljóðfæri er hann umsvifalaust látinn fara...á annað hljóðfæri..he he.

fimmtudagur, nóvember 02, 2006

What´s life got to do with it

Allt, bara allt. Stundum langar mann að taka lífið og tilveruna og krossfesta hana eins og hún leggur sig, snúa uppá hana þar til hún fer að grenja og pissa síðan í sig. Mig langar að bjóða mínu eigin lífi birginn, ég stjórna hér..ekki þessi tilvera sem er bara og hefur orðið vegna hinna og þessarra atburða. Hefur fólk ekki einhvern tímann gert eitthvað eða lent í einhverju sem það hélt að það gæti ekki eða hefði ekki í sér að gera. Dæmi eins og með mannsröddina..hvað er hún og yfir hverju býr hún. Erum við ekki öll með rödd inní okkur sem heyrist ekki daglega..og hefur kannski aldrei heyrst í fyrr en e.t.v. einn dag þegar eitthvað svo spennulosandi gerist að sú rödd brýst út? Er maður þá búinn að frelsast frá tilverunni sem umlykur okkur öll???