Ég hef mikið dálæti á pönki. Núna er ég að hlusta á snilldarpönk, japansk band melt bananas. Það er nefnilega fyndið þar sem ég var með það á heilanum fyrir mörgum árum síðan að stofna japansk pönk band, og ég veit sumir muna vel eftir því:)
Í gær var æfing nr. 2 haldin á vinnustofunni minni. Fyrsta æfingin var fyrir u.þ.b. ári síðan. Með þessu framhaldi kemur mjög bráðlega út plata, stútfull af óheiðarlegu pönki.
Æfingin var alveg klikkuð, höfum fengið 2 nýja meðlimi frá því á 1. æfingunni. Kata kom þarna sterk inn, frábær tónlistarspíra. Einnig Sveinn sem gerði góða hluti. Næstum því of góður fyrir minn smekk en get ekki neitað því að hann var ansi nauðsynlegur.
Hlakka mikið til næstu æfingar. Verst að mottó bandsins er að spila ölvaður og það gengur víst ekki hvaða kvöld sem er..he he. Annað mottó er að ef einhver ské kunni að vera orðinn of fær á ákveðið hljóðfæri er hann umsvifalaust látinn fara...á annað hljóðfæri..he he.
sunnudagur, nóvember 05, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
já þetta var ógeðslega hresst! :D
hugsa að við séum öll nógu snarklikkuð til að spila edrú:)
Edrúúúú, are u gone mad"" Takk fyrir síðast ,var svo gaman. Greyið Pétur, allur krambúleraður..rotaðist víst einhvers staðar niðrí bæ he he. Þetta hefði getað orðið mjög hættulegt en hann er enn á lífi, með glóðarauga og hamsturskinn.
Skrifa ummæli