mánudagur, október 08, 2007
Latest finished piece
Jæja var að ljúka við þessa þannig að hún er alveg búin. Er búin að vera vinna í henni grínlaust í 3-4 mánuði. Hún hefur tekið sinn toll af geðheilsunni. Stundum gengur þessi pynting vel upp sem betur fer...og allir græða:)
fimmtudagur, september 20, 2007
miðvikudagur, september 19, 2007
Köben-dagur 1
Köben var æði og ísbarinn var á hótelinu sjálfu!! Hótelið var úber töff og 2-3 mín labb frá Strikinu og Rådhuspladsen, skemmtum okkur rosalega vel, borðuðpum geggjaðan mat á Vesterbro Bryghus sem ég mæli stórlega með í alla staði. Þeir brugga sinn eigin bjór, hrikalega góður og maturinn!!!!Vááá, geggjaður. Fórum í tívolíð á sunnudeginum og ég missti röddina, grét og titraði eftir að hafa asnast uppí fallturninn. Ég get ekki lýst hræðsluhryllingnum þegar tækið var á leið upp og eftirsjánni. Stundum er maður bara sjálfum sér verstur og það að konur séu konum verstar..hehe konur eru sjálfum sér verstar!!! Bjarki fékk víst mikla skemmtun út úr þessu. Held hann sé kominn með nýtt áhugamál, að koma mér útí einhverja svona vitleysu. Ég er með einstaklega lítið hjarta, það er nokkuð ljóst. Nói Páll var í pössun hjá tengdó á meðan, ég verslaði viti mínu fjær á mig og hann. Bjarki var líka bara nokkuð duglegur! Ferðin var æði og danir eru æði! Mér var líkt við handboltalandsliðskonuna Mia Boesen..Bara ágætishrós, var sagt ég væri rosalega lík henni hehe.
fimmtudagur, september 13, 2007
Köben köben
Vinnan er á leið til Köben, Laundromatið hans Friðriks, Ísbarinn ská á móti Hótel 27 rétt við strikið, karokeebarinn á strikinu!! Margt annað er í bíum bíum og svo er laugardagskvöldið leyndó, borðum úti á einhverjum rosa hipp og kúl stað. Í eitt sinn fórum við í siglingu útá eyju og borðuðum á veitingastað með rosalegu útsýni, alveg klikkað gaman. Rosa fjör í bátnum, lögðum hann alveg undir okkur. Greyið barþjóninum var bara ýtt til hliðar..Íslendingar eru bara snillingar þegar kemur að túrisma en svo djöfull leiðinlegir oft þegar kemur að því að vera Íslendingur á Íslandi..
miðvikudagur, ágúst 08, 2007
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)