sunnudagur, mars 18, 2007

Class 75 party

Stína hélt stuðinu uppi, bauð liðinu heim til sín í kræsingar að hætti Austfirðinga. Það var ágætismæting. Frá glæsivillu Stínu Stuð var haldið á Players á Austfirðingaballið. Ég persónulega þekkti nánast enga,hittum Tinnu Dverg, Hlín Adda, Heiðu, Gunna Bank, Pétur Bö m.a. og auðvitað Hildi og Sallý. Flestir hittu nú slatta af liði held ég sem ég hef aldrei kynnst eða bara misst allt samband við. Maður kannaðist við einn og einn. Það er mikill munur í dag á Austfirsku rótunum þar sem maður var aldrei í M.E. oþh. Lilja var í banastuði, verð að taka það fram. Held að allir hafi verið ánægðir með kvöldið.














sunnudagur, mars 11, 2007

Ammæli hja Benjamini og Gunnari Axel











Þetta var bara langt og skemmtilegt afmæli. Mikið talað og kátt á hjalla. Bjarki mætti þarna í klukkutíma, var að vinna allan daginn. Eru að breyta skrifstofuaðstöðunni í Myndform. Hann er kominn aftur á gamla vinnustaðinn og er bara ánægður með það skilst mér. Annars tölum við Bjarki ekki mikið saman, þannig er það best. Erum súperþjálfuð í augngotum og andliststjáningum..
Benjamín var að verða 3ja ára og Gunnar Axel, uss, held 10 ára. Ég leiðrétti þetta bara ef þetta er vitlaust.

Ammæli hja Stefani Betu og Finns









Það er nóg að gera í afmælum þessa dagana. Nú er ég að verða ansi hress eftir flensuna og tók gærdaginn með trompi. Skrúbbaði Nóa Pál, straujaði skyrtuna hans, keyptum gjafir og gáfum afmælisbörnunum boli með mynd af Nóa Páli...þetta er vinur minn, Nói Páll. Held það hafi vakið lukku. Það er svo gaman að fara í svona veislur og deila einhverju með fólki, þó það sé ekki nema bara, heiiii veistu hvað, ég vaxaði mig undir höndunum um daginn!!!

New York-Americans

Heaven is a place on earth? USandA var þokkalega spennandi ferð. Fyrsta skiptið mitt til Bandaríkjanna. Hefði viljað vera meira skipulögð og hafa meiri tíma en bara það að koma þarna var heilmikil upplifun. Þarna eru öfgarnir eins og þeir gerast bestir,..alla vega hingað til fyrir mitt leyti. Til að fara í mikla menningarferð var þetta kannski ekki rétta föruneytið en engu að síður yndislegar kellingar. Ég hefði bara átt að láta vaða, með bakpokann, og skella mér ein í Manhattan borgina en vantaði smá kjark. Gamla kjellingin orðin eitthvað lífshrædd og aum..hehe. Ég man nú þegar ég æddi áfram í útlöndum og lét ekkert á mig fá, bara reddaði hlutunum. Það verður spennandi að fara þarna aftur og taka þetta með trompi. Við lentum í drukknum leigubílstjóra sem var þokkalega óánægður með daginn og lét okkur alveg heyra það. Var lítið að setja hendurnar á stýrið og snéri sér aftur þegar hann var að tala við okkur. Í eitt sinn sagði ég eitthvað, hann svaraði ekki, ég spurði aftur og þá hrökk hann við og ég hélt hann myndi keyra útaf...svo ég ákvað bara að þegja það sem eftir var ferðarinnar..og biðja til Guðs að komast heil á höldu.



miðvikudagur, mars 07, 2007

Myndablogg

Detta mìn, detta okkar allra
Myndina sendi ég

föstudagur, mars 02, 2007

Myndablogg

Ì flùùvèlinni til NEw york
Myndina sendi ég