sunnudagur, mars 18, 2007

Class 75 party

Stína hélt stuðinu uppi, bauð liðinu heim til sín í kræsingar að hætti Austfirðinga. Það var ágætismæting. Frá glæsivillu Stínu Stuð var haldið á Players á Austfirðingaballið. Ég persónulega þekkti nánast enga,hittum Tinnu Dverg, Hlín Adda, Heiðu, Gunna Bank, Pétur Bö m.a. og auðvitað Hildi og Sallý. Flestir hittu nú slatta af liði held ég sem ég hef aldrei kynnst eða bara misst allt samband við. Maður kannaðist við einn og einn. Það er mikill munur í dag á Austfirsku rótunum þar sem maður var aldrei í M.E. oþh. Lilja var í banastuði, verð að taka það fram. Held að allir hafi verið ánægðir með kvöldið.














2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæ hæ.
takk fyrir síðast myndirnar mínar koma inn í kvöld

kv sallý www.blogg.central.is/bubbulina

Nafnlaus sagði...

Sælar :) Leiðinlegt að hafa misst af þessu gami um helgina. Það hefur verið fjör hjá ykkur sýnist mér á myndunum. Bestu kveðjur Helga Dögg