sunnudagur, mars 11, 2007
New York-Americans
Heaven is a place on earth? USandA var þokkalega spennandi ferð. Fyrsta skiptið mitt til Bandaríkjanna. Hefði viljað vera meira skipulögð og hafa meiri tíma en bara það að koma þarna var heilmikil upplifun. Þarna eru öfgarnir eins og þeir gerast bestir,..alla vega hingað til fyrir mitt leyti. Til að fara í mikla menningarferð var þetta kannski ekki rétta föruneytið en engu að síður yndislegar kellingar. Ég hefði bara átt að láta vaða, með bakpokann, og skella mér ein í Manhattan borgina en vantaði smá kjark. Gamla kjellingin orðin eitthvað lífshrædd og aum..hehe. Ég man nú þegar ég æddi áfram í útlöndum og lét ekkert á mig fá, bara reddaði hlutunum. Það verður spennandi að fara þarna aftur og taka þetta með trompi. Við lentum í drukknum leigubílstjóra sem var þokkalega óánægður með daginn og lét okkur alveg heyra það. Var lítið að setja hendurnar á stýrið og snéri sér aftur þegar hann var að tala við okkur. Í eitt sinn sagði ég eitthvað, hann svaraði ekki, ég spurði aftur og þá hrökk hann við og ég hélt hann myndi keyra útaf...svo ég ákvað bara að þegja það sem eftir var ferðarinnar..og biðja til Guðs að komast heil á höldu. 



Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli