föstudagur, júlí 20, 2007

Opnun a SEX a morgun laugardaginn kl 17 - 19

Þetta er s.s. 6. einkasýningin mín, ótrúlegt að maður skuli nenna þessu. Þetta er algjörlega love hate relationship en fíknin er sterkari. Það verður frábær, eðal plötusnúður á staðnum, ekkert tölvubull, bara alvöru PLÖTU snúður,,DJ in the house en no worries fyrir þá hvektu og hjartveiku þá er hún hið mesta gæðablóð og meira inní good music en einhverrum óþverrahávaða..eins og Les Kunt og svoleiðis arg og garg hehe. Hrikalega margir verða víst annað hvort útá landi eða erlendis, það mun auðvitað hafa soldið að segja fyrir opnunina en þá hefur maður bara meiri tíma fyrir hina:) Megi guð vera með mér á þessum degi og ykkur hinum kannski smá.

Pimps & ho's party föstudaginn 13.

Vinnustofunni var gjörsamlega gjörbreytt, ég þekkti varla mína eigin, svona mjög íkt sagt frá. Þetta var ótrúlega flott breyting og afmælisgestirnir voru ótrúlega fígúratívir. Ég set inn fleiri myndir seinna, have no time now..


sunnudagur, júlí 15, 2007

Furðulif

Kjarninn minn er hulinn. Ég virðist algjörlega kjarnalaus þessa dagana. Þetta á ekki að hljóma sem þunglyndisblaður.
Skrítið þegar svona stór hluti af manni hálf-hverfur. Einu stundirnar þar sem ég finn fyrir honum er þegar ég græt eða hlæ, þegar ég knúsa Nóa Pál. Allt annað er, og þó, öfgarnir, kannski hjálpar það. Fyndið að maður skuli skammast sín fyrir að vera down..eins og maður megi ekki skrifa um það.

föstudagur, júlí 13, 2007

Á leiðinni í frí til Búlgaríu, bara familían


OHH ég er farin að hlakka svo til að komast í rólegheitin, hitann og sólina. Vakna hvern dag, fáklædd og áhyggjulaus, bara við 3 Það er svo gaman að vakna á morgnana þegar veðrið er gott. Allt er svo auðvelt. Nói Páll elskar að vera í útlöndum, hann meira segja talar enn um Mallorca frá því í fyrra, synda í sjónum og vera í lauginni. Hann reyndar elskar bara að gera eitthvað. Finnst lítið spennandi að vera heima. Þegar við erum öll saman að gera eitthvað þá er hann ánægður.