miðvikudagur, september 19, 2007

Köben-dagur 1


























Köben var æði og ísbarinn var á hótelinu sjálfu!! Hótelið var úber töff og 2-3 mín labb frá Strikinu og Rådhuspladsen, skemmtum okkur rosalega vel, borðuðpum geggjaðan mat á Vesterbro Bryghus sem ég mæli stórlega með í alla staði. Þeir brugga sinn eigin bjór, hrikalega góður og maturinn!!!!Vááá, geggjaður. Fórum í tívolíð á sunnudeginum og ég missti röddina, grét og titraði eftir að hafa asnast uppí fallturninn. Ég get ekki lýst hræðsluhryllingnum þegar tækið var á leið upp og eftirsjánni. Stundum er maður bara sjálfum sér verstur og það að konur séu konum verstar..hehe konur eru sjálfum sér verstar!!! Bjarki fékk víst mikla skemmtun út úr þessu. Held hann sé kominn með nýtt áhugamál, að koma mér útí einhverja svona vitleysu. Ég er með einstaklega lítið hjarta, það er nokkuð ljóst. Nói Páll var í pössun hjá tengdó á meðan, ég verslaði viti mínu fjær á mig og hann. Bjarki var líka bara nokkuð duglegur! Ferðin var æði og danir eru æði! Mér var líkt við handboltalandsliðskonuna Mia Boesen..Bara ágætishrós, var sagt ég væri rosalega lík henni hehe.

Engin ummæli: