Hvað er að ungum mönnum sem kjósa frekar að vera freðnir en að deita? Langt síðan maður hefur þurft að spá í svona hlutum en hér er maður nú staddur og því miður. Anyhow þá rekur maður sig greinilega oft á það að fólk sé misjafnt. Maður veit aldrei hvað aðrir hugsa og hvernig þeir bregðast við. Með stjórnmálaruglið í þessu landi langar mig að segja eitthvað því allir gera það víst, þá er best að gera það líka en með mínum hætti..
Það er lítið mál að míga og skíta á sig en að segja frá því er annað!
Var að klára hana í eldhúsinu heima. Mun líklega ekki mála mikið meira á Bugðulæknum. Flyt um næstu helgi. Komin með leiguhúsnæði í 104 hverfinu. Fínt, Nói Páll er í leikskóla rétt hjá og þá er markmiðinu náð í bili. Var 2 löng kvöld með þessa mynd. Er gaman að kljást við nýtt efni..þ.e. akrýlinn..Hef aldrei verið sérstaklega fær á hann.
Geggjuð helgi með meiriháttar tónlistarviðburðum Airwaves hátíðarinnar. Bandið sem kom mest á óvart hvað varðar útgeislun og vinsældir var Fm Belfast sem spilaði á Nasa á laugardagskvöldinu. Þau gjörsamlega heilluðu alla og húsið var troðfullt. Fólkið tók þátt í uppákomum þeirra og hoppaði, söng og hoppaði svo meira. Allir gjörsamlega í kremju og svitabaði. Ekkert stoppaði gleðina og áhorfendurnir voru yfir sig hrifnir af þeim enda meiriháttar listamenn í þessu bandi. Gott að Ísland sé komið með hljómsveit sem nýtur vinsældar vegna hæfileika OG vinalegs boðskaps..Gleði, fjör, skilningur og hæfileikar...
Reglur og reglubundið líf á bara ekkert voða vel við mig. Ég elska reglur svona svipað og fólk elskar að vera í góðu formi en nennir ekki að hreyfa sig. Ég á mér fáar reglur og held þeim en annað er upp og ofan, niður og undir..Hrikalegt þegar maður er farinn að skrifa fyrir hina..
Þá skrifar maður og vonast eftir commentum? Nei ég er ekki þannig..Vá hvað ég hef breyst hehe.
Reglur eru kannski ekki vandamálið hjá fólki sem er með gott common sense. Enginn óreglupési er að deyja úr áhyggjum af óreglunni er það? Þeir sem sópa kúkableijum undir rúmið og allt það..
Ég er velstödd og velstemmd..bara svona fyrir mig og mitt litla góða líf. Reglubundin ást innra með manni er kannski lausnin við ruglinu þarna úti.