laugardagur, janúar 26, 2008

Vatnsberinn


Ég hef verið að vinna í þessu verki síðustu daga. Er endanlega búin með það,, að ég held en það er það blautt ennþá að ég gat ekki alveg tekið nógu góða mynd af því og svo er frekar dimmt inní bílskúrnum. Set inn þessa nýju bara samt, er bara í þessu stuði núna, núna núna gera núna.
Ég bíð oft með verk og sé til hvort eitthvað fari að angra mig og ef ekki þá er þetta komið.

Allt gott en þú?




Nú er ég á uppleið eins og maður segir en ég hef verið dáldið of djúpt hugsi varðandi listina og hún tekur á. Á gerir alveg annað en að mála, hljómar oft eins og ég geri ekkert annað. Dagga systir var hjá mér í síðustu viku í 1 dag en Rósa og Garðar komu með henni í stutta heimsókn þegar þau sóttu Döggu útá völl. Rósa Lilja hefur alltaf verið ljóshærð, rosa breyting á gellunni. Mér finnst hún miklu flottari svona, klæðir hana óttrúlega vel. Þetta eru kannski ekki bestu myndir af þeim mæðgum, ég ógeðslega skemmtileg að setja þær samt inn:) Það er frábært að eiga nóg pláss fyrir gestina:) Pöntuðum okkur pizzur og kjöftuðum langt framá kvöld. Ekta Múlavegur 23

föstudagur, janúar 25, 2008

Myndskilaboð

Drekaávöxtur in progress


Þetta er tölvupóstur, sendur með Myndskilaboðum frá 3546933839, titill skilaboðanna er: .

Það er ekki hægt að svara tölvupóstinum.

föstudagur, janúar 18, 2008

2 sæta sófar eins og ágætis bíldrusla??

Ég hef þrætt hverja eina og einustu húsgagnaverslun í borginni og það er bara eins og menn og konur séu með milljón í laun á mán...að meðaltali. Þetta er algjör firra fyrir mér og ég er alls ekki fátækur einstaklingur, bara so sorry en ég fæ ekki sófa í íbúðina mína!! Ég hef gott auga fyrir hönnun og geri mér grein fyrir að hún kostar meira,, en þegar verðmunurinn er orðinn svona gígantískur og þá meina ég, hönnun á milljón og þessir "venjulegu" á 170 uppí 300 þús þá spyr maður sjálfa sig hvernig svona gangi upp? Það sem ég á við er, er ekki hægt lengur að fá ágætis sófa, þó svo að það sé eftirlíking, á 100 þús eða minna? Er þetta ekki klikkun að 2 sæta sófar séu eins og ágætis bíldrusla??

fimmtudagur, janúar 17, 2008

Erfitt að fá höfnun-Hvað skal gera?

Það er erfitt að vera hafnað þegar maður er búinn að gera sér væntingar. Það er svo persónulegt og ég get bara sagt að fyrir nokkrum mánuðum eða vikum síðan hefði svona höfnun alveg snúið mig niður og jarðað mig. Ég tel mig vera frábæran málara og mörgum framar þegar kemur að tilfinningu og getu. Höfnunin snérist reyndar ekki nákvæmlega um mig og hvað ég mála heldur meira að listastíllinn minn hentaði galleríinu ekki nógu vel. Ég fékk gott fíbakk frá stýrunni og ég ætla ekki að gefast upp og fara vinna í Bónus. Ég hef heyrt þetta frá ótrúlegustu listamönnum, að svona séu oft hlutirnir og að þetta sé þrælerfitt en núna er þetta að skiljast betur:) Ég skil núna afhverju listamenn verða ekki oft þekktir fyrr en rétt fyrir dauðann eða eftir hann. Þetta er hörkuvinna, að mála og ég get því miður ekki gert í því hvað ég er mikil tilfinningavera og á bara mjög erfitt með að mála eitthvað eitt þema. Ég hrífst oft af viðfangsefnum mínum með ólíkum hætti. Ég get alls ekki málað það sem vekur ekki neina tilfinningu. Ég geng útá tilfinninguna þegar ég mála. Það er alveg spurning hvort sjálfsmyndir séu að fara koma inn hjá mér. Það hefur lengi verið í hausnum á mér en mér hefur fundist þetta vera ekki alveg söluvænt. Sjálfsmyndir eru þó ansi magnaðar og það gæti verið áhugavert að sjá hvað ég hef um mig sjálfa að segja:) Já, þegar ég mála þá er ég að tjá mig. Ég mála ekki til þess að gera eitthvað fallegt eða rétt. Það er alltaf einhver undirliggjandi tilfinning.

sunnudagur, janúar 13, 2008

Myndskilaboð


Þetta er tölvupóstur, sendur með Myndskilaboðum frá 3546933839, titill skilaboðanna er: .

Það er ekki hægt að svara tölvupóstinum.

sunnudagur, janúar 06, 2008

Barkabólga á Barnaspítala Hringsins

Nói Páll vaknaði í gær með mikla öndunarörðugleika. Þetta var býsna hrikalegt og hljóðin frá honum ekki þægileg.
Við Bjarki fórum með hann á Barnasp um 11:30 í gærkvöldi. Við fengum svo ofboðslega góða þjónustu og yndislegir læknarnir sem tóku á móti okkur. Við erum að tala um yfirbarnalæknir þarna var eins og Pétur Pan / Patch Adam eða eitthvað álíka!! Ótrúlegt hvernig hann var í viðmóti. Hann var með galdrastaf í vasanum sem var ótrúlega skemmtilegur ( glit og alls konar skraut sem hreyfðist í bláum og glærum vökva) og svo blés hann sápukúlur á meðan annar læknir var að hlusta hann. Þetta virkaði auðvitað því þarna gat hann náð að hafa áhrif á hversu ört hann andaði. Þetta skiptir gríðarlegu máli þegar fólk er í ástandi og auðvitað hrætt, að læknirinn sé verndarinn þinn. Við vorum roslaega ánægð og Nóa líður nú vel. þarf að vera heima í 2-3 daga, er með smá hita og hálsóþægindi.

Takk takk fyrir meiriháttar framlag..svo er alltaf verið að reyna minnka mannaflið og þá auka álagið...og takmarka peningana sem renna til þessarra stofnanna??

Nena Næturfugl

Er akkúrat núna í þessari fögru fljóð. Finnst hrikalega gaman að gera verk þar sem ljós og skuggar vinna saman og mynda fallegar línur.

Skuggar eru ótrúlega skemmtilegt fyrirbæri og það er aldrei einn skuggi, heldur margir sem teikna formið og svo brotnar oft ljósið inní hann/ þá. Líkaminn og maðurinn allur er skemmtilegur að takast á við, finnst það oft vera eins og að vinna með ljóð eða músík. Ég fer á flug og svíf. Þess vegna verða pensildrættirnir svona hreyfanlegir og lifandi. Aðalþjálfunin er að auka skilninginn á viðfangsefninu með vinnu og ekkert annað. Það er ekki hægt að gera þetta að alvöru ef þetta er lært uppúr bók. Það verður aldrei líf í verkinu ef listamaðurinn hrífst ekki og lifir sig inní viðfangsefnið.


Þetta er tölvupóstur, sendur með Myndskilaboðum frá 3546933839, titill skilaboðanna er: .

Það er ekki hægt að svara tölvupóstinum.

Pabbi legent

Pabbi er þá loksins orðinn ódauðlegur. Ég fékk beiðni á að gera þessa mynd fyrir svona 5 árum, hef að vísu verið lengi með hana en kannski ekki alveg í 5 ár:) Síminn minn tekur nú ekki bestu myndirnar í heimi, gamli góði hlunkurinn.

Verkið er ofboðslega flott, djúpir litir, góð skerpa og litasamsetning heppnaðist fullkomnlega. Litirnir tala vel saman og vinna saman, ekki gegn hvorn öðrum. Verkið er 40 eða 50 cm x 30, man það ekki alveg.


Þetta er tölvupóstur, sendur með Myndskilaboðum frá 3546933839, titill skilaboðanna er: .

Það er ekki hægt að svara tölvupóstinum.

miðvikudagur, janúar 02, 2008

Systkinin hittast eftir jól




Systkinin hittust, 4 af okkur ásamt krógum og afkrógum. Vantaði Döggu systir en hún býr á Seyðisfirði með sín 6 börn. Borðuðum 5 pizzur, ofnrétt, ostaköku og ís. Við kunnum að taka vel á magamálunum og ekkert slegið af enda Dallaættin hörð af sér

Áramótin







þriðjudagur, janúar 01, 2008

Aðfangadagur
















Geggjaðar myndir frá Tankavinnunni hans Pabba í Hvalfirðinum

Myndirnar eru teknar í október 2007



Myndir frá 65 ára afmæli mömmu 10.11.07





Óla systir og fjölskylda, Hrönn, Finnbogi og Róbert kíkja í heimsókn 23. des 2007





Elsta systir mín er víst ævintýrakona eftir allt. Þau hjónin fluttu til Kanarí fyrir 2 mán síðan ca. Þau kíktu á klakann skömmu fyrir jól, Óla varð eftir yfir hátíðarnar en Jóhann fór út að vinna rétt fyrir jól. Kristján er í Finnskunámi í Finnlandi og kom líka yfir hátíðarnar.