föstudagur, janúar 18, 2008

2 sæta sófar eins og ágætis bíldrusla??

Ég hef þrætt hverja eina og einustu húsgagnaverslun í borginni og það er bara eins og menn og konur séu með milljón í laun á mán...að meðaltali. Þetta er algjör firra fyrir mér og ég er alls ekki fátækur einstaklingur, bara so sorry en ég fæ ekki sófa í íbúðina mína!! Ég hef gott auga fyrir hönnun og geri mér grein fyrir að hún kostar meira,, en þegar verðmunurinn er orðinn svona gígantískur og þá meina ég, hönnun á milljón og þessir "venjulegu" á 170 uppí 300 þús þá spyr maður sjálfa sig hvernig svona gangi upp? Það sem ég á við er, er ekki hægt lengur að fá ágætis sófa, þó svo að það sé eftirlíking, á 100 þús eða minna? Er þetta ekki klikkun að 2 sæta sófar séu eins og ágætis bíldrusla??

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

æj ég er alveg að skilja þig, ég er komin á fullt í að leita að mublum í slotið!
Loksins þegar maður á að kaupa sér mubblurnar þá hef ég ekki hugmynd um hvernig húsgögn ég vilji, hvar ég á að setja þau í húsið og allt í skralli! ætli mar geti fengið innanhúsarkitekt til að skipuleggja rýmið fyrir sig fyrir lítið? en kannski þá get ég valið mér húsgögnin.Æj ég er samt ekki tilbúin að borga milljón fyrir sófadjöful!

Nafnlaus sagði...

Jesús já! Þegar við Þ vorum að velja okkur sófa settumst við í einn sem átti að kosta 1.218.000!!! Og ekki sérdeilis þægilegur einu sinni... En gaman að fylgjast með síðunni þinni, myndin sem þú gafst mömmu er í pössun hjá mér og hefur fengið mikið hól :) Svo er ein sem vill fá að kíkja í heimsókn til þín :) Verðum í bandi með það þegar þar að kemur...
Knús
Elsa frænka
P.s. verðum að fara að hittast með strákana, Jóhann Breki á Nóa Pál segir mér það oft :)

pensillinn sagði...

Já, auðvitað verðum við að hittast oftar með strákana. Nói hefur líka mjög gaman að honum og það ætti bara að vera skemmtilegt. Ertu með blogg??


Gott að heyra að fólk sé að fatta hversu drullugóð ég er!! Bílskúrinn minn er ávallt opinn:)