sunnudagur, janúar 06, 2008

Barkabólga á Barnaspítala Hringsins

Nói Páll vaknaði í gær með mikla öndunarörðugleika. Þetta var býsna hrikalegt og hljóðin frá honum ekki þægileg.
Við Bjarki fórum með hann á Barnasp um 11:30 í gærkvöldi. Við fengum svo ofboðslega góða þjónustu og yndislegir læknarnir sem tóku á móti okkur. Við erum að tala um yfirbarnalæknir þarna var eins og Pétur Pan / Patch Adam eða eitthvað álíka!! Ótrúlegt hvernig hann var í viðmóti. Hann var með galdrastaf í vasanum sem var ótrúlega skemmtilegur ( glit og alls konar skraut sem hreyfðist í bláum og glærum vökva) og svo blés hann sápukúlur á meðan annar læknir var að hlusta hann. Þetta virkaði auðvitað því þarna gat hann náð að hafa áhrif á hversu ört hann andaði. Þetta skiptir gríðarlegu máli þegar fólk er í ástandi og auðvitað hrætt, að læknirinn sé verndarinn þinn. Við vorum roslaega ánægð og Nóa líður nú vel. þarf að vera heima í 2-3 daga, er með smá hita og hálsóþægindi.

Takk takk fyrir meiriháttar framlag..svo er alltaf verið að reyna minnka mannaflið og þá auka álagið...og takmarka peningana sem renna til þessarra stofnanna??

Engin ummæli: