laugardagur, maí 31, 2008

Sunnudagurinn 31. maí










Nùna svona. Tarf ad skjòtast ùt en er annars nùna bara ad mála


Þetta er tölvupóstur, sendur með Myndskilaboðum frá 3546933839, titill skilaboðanna er: .

Það er ekki hægt að svara tölvupóstinum.

föstudagur, maí 30, 2008

Dagur 18 í Barcelona





















Fór fyrst að skoða MACBA,,eða Museu d´Art Contemporani de Barcelona. Órtúlegt bygging og mikið respekt. Skrítið að sjá lífið í kringum bygginguna. Fólk bara hangir þarna í kring, situr eða skeytar á hjólabrettum..bara að dóla sér eitt oft.
Maður sér líka alveg að þetta eru oft listatýpur en ég veit ekki alveg hvort ég hefði gaman af að hanga fyrir utan Kjarvalsstaði eða Listasafn Reykjavíkur?!! Hér er bara annar fílingur og ég fíla hann. Ég fór svo niðrí Galeria Zero þar sem ég er að sýna. Það var búið að setja nafnið mitt við verkin og taka myndirnar hans Karels frá. Ég varð voða fegin og líka að við náðum að slétta úr öllum málum. Ég útskýrði mín vonbrigði en í leiðinni sagði ég að mér hefði fundist leiðinlegt að þetta hefði orðið svona í gær. Þetta væri 1. sýningin mín erlendis og ég hefði ákv væntingar en um leið þá hefði ég átt að fara í þessi mál fyrr. Hann var mjög fínn og við spjölluðum aðeins meira um framhaldið. Ég tek niður myndirnar mína á mánud milli kl 17 og 18 og fer svo uppá völl um 20:30 um kvöldið. Mér létti mikið mikið eftir að hafa farið og talað við hann. Var voða dauf í gær. Hann bauð mér aftur að taka þátt. Þetta er hálfgerðr listaráðstefna sem hefst 12. júní. Allir listamenn með 1 -2 verk og ég ákvað bara að skella mér á þetta og gera bara 1 verk áður en ég færi. Ég hef alveg tíma og nóg að listaöndum yfir mér eins og er, varla annað hægt hér í þessari borg. Fór í myndlistabúðina mína á Ferran götunni. Vinur minn þar er farinn að heilsa mér og kveðja með nafni! Ekki leiðinlegt. Við spjölluðum helling um myndlist. Ég lét hann fá myndir af verkum eftir mig og hann ætlar að senda mér einhverjar myndir af sínu stöffi. Ég sagði honum frá heimsókn minni í Massana myndlistaskólann og ég hefði alveg fallið fyrir byggingunni og andanum þarna en þá tók hann 1. árið þar og er að fara aftur til að klára. Var mjög hrifinn að skólanum og langar mikið að klára. Hann hefur alltaf gefið mér listamannaafslátt og núna gaf hann mér aðeins meiri afslátt enda erum við orðnir svo góðir vinir hehe. Ég bað ekki um neitt, hér eru bara menn svona. Þeim líkar hvað þeir sjá og heyra og vilja bara vera næs...ekkert flóknara en það. Ég keypti mér viðarplötu, 80 x 61 cm, búið að pússa yfir hana. Keypti líka 3 liti, 1 akrýl til að grunna með og 2 olíu auka við hitt sem ég keypti um daginn.
Myndin sem ég er að gera fyrir sýninguna 12.júní "No me gustar del Frio" er eimitt á þessar viðarplötu. Ég man bara frá því í LHÍ þegar ég málaði á viðarplötur, hugsunin breytist þegar ég mála á þannig efni. Ábyrgðin fer og mér virðist vera auðveldara að kasta fram einhverju en á striga sem kostar 10.000 kr..Kannski no wonder that golden crispee. Nýja myndin sem ég vona að heppnist og ætla að skilja eftir..:Hvað segir annars betur en þetta að mörgæsinni líki ekki við kuldann..en svona er ég bara. Íslensk en samt ekki alveg og svo hefur hún líka margar meiningar eins og ekki alltaf er náttúran eins og hún á að vera. Þú lítur út fyrir að vera hitt og þetta en eitthvað er ekki í takt við þitt umhverfi og örlög.?? Er búin að teikna mikið undanfarna daga og sérstaklega eftir að Hrönn fór.
Ps. ég lenti mikið í því í dag að vera mæta mönnum og þeir heilsa mér HOLa Guapa án þess að sé nokkur ástæða hehe. Þetta finnst mér fyndið og kannski er þetta bara létt meint. Ég svara þessu ekki og veit ekki alveg hvort ég ætti að vera segja HOla á móti..Ekki segi ég Hola Guapo hehehehe. Þá lendir maður kannski í krísunni:)

Myndskilaboð

Er ad gera tessa f adra sýn ì barcelona sem byrjar 12.Jùnì. Ætla ad klára hana og skilja eftir


Þetta er tölvupóstur, sendur með Myndskilaboðum frá 3546933839, titill skilaboðanna er: .

Það er ekki hægt að svara tölvupóstinum.

fimmtudagur, maí 29, 2008

Dagur 17 í Barcelona










Rólegur og heitur dagur. Ég bjóst ekki við þessum hita og var ekki með neina vörn. Það er svo töff að vera túristi neonbleikur á höndum og bringu, bara gat ekki sleppt því. Sama og venjulega, tók lestina niðrí bæ. Fékk mér að borða og rölti um bæinn. Fór svo niður á höfn og ég bara er orðin pínu pirruð á þessu áreiti. Ég fæ ekki frið. Ég spottaði þessa manneskju, hún sat og var ekki að gera neitt og rétt hjá var annar að labba um og gera ekki neitt. Ég passaði mig að horfa ekki á þá og labbaði beint áfram. Síðan sé ég að þeir eru báðir farnir að labba sitthvoru megin við mig og ég bara varð verulega pirruð. Staldraði aðeins og þá hægðu þeir á sér...arrgg!! Mætti konuhóp og tók á það ráð að spyrja hvort ég mætti ganga með þeim smá spöl. Þær voru þýskar, ég útskýrði og þær meira segja bentu á annan þeirra og spurðu hvort það væri þessi!! Hvað er málið, en frábært ráð, ég gekk með þeim góðan spöl og við spjölluðum um hitt og þetta. Ferju og ísland o.s.frv. Þegar við vorum komnar nokkuð langt þá leit ég við og sá þeir voru hofnir. Þá þakkaði ég bara fyrir og kvaddi. Ég fór svo í galleríð þar sem ég er að sýna og fór bara í vont skap. Þessi seinaskapur í manninum. Hann var enn ekki búinn að merkja verkin mín og svo bað ég hann á opnuninni fyrir nokkrum dögum síðan að færa eitthvað drasl frá myndunum mínum...hehe en þetta voru myndir eftir hann sjálfan. Pælið í hallæri en hann tróð verkum sínum nánast fyrir framan mín verk. Jú það fauk í mig og svo varð ég bara hálf ómöguleg eftir að þurfa að vera æsa mig yfir þessu. Maður er búinn að borga viðbjóð fyrir allan pakkan. Kannski þurfti ekki að vera hérna svona lengi en!? Ég geri hlutina öðruvísi næst, það er á hreinu. Auðvitað þegar ekki er voða gaman þá fær maður hrikalega heimþrá og nú er ég alveg að deyja, langar svo heim. Langar svo heim langar svo heim. Ég ætla að fara í Contemporary museumið sem er út frá Römblunni á morgun. Það ætti að gera mig glaða. Rosalegt að heyra með jarðskjálftann!! Kannski lét ég svona í dag útaf honum?? Eitthvað var ég ekki í lagi í dag, það er víst. Sorgmædd, pirruð, einmanna, pínu hrædd og reið. Bara allur pakkinn. Auðvitað veit ég að það er annar dagur eftir þennan og það er alltaf stutt í brosið ef maður bara reynir. Sjáið þetta eftir Bjarka minn

miðvikudagur, maí 28, 2008

Dagur 16 í Barcelona



















Dagur 2 án Hrönnsu minnar. Útlit fyrir góðan dag. Tók lestina niðrá Römblu eftir að hafa rölt góðan gang hér í umhverfinu og spurst fyrir um internetkaffihús hér í hverfinu. Ekkert kom út úr því  en ég komst á netið á McDonalds í miðbænum. Meiriháttar að komast í svona. Keypti mér ekkert að boða enda ekki alveg mitt uppáhald. Frítt og gott. Ég fór svo á rambið eins og vanalega. Fann ástartöskuna mína ohh bara elska hana. Keypti mér í sömu búðinni tösku undir tölvuna mína. Var að stefna að finna Massana listVeaskólann. Fann hann og fór inn, skoðaði og fór meira segja inní stúdíóin, talaði við nokkur sem voru að mála og vá hvað mér leist vel á þennan skóla. Þarna er listagyðjan sveimandi yfir öllu. Ég bara fann það. Þau voru líka bara svo fín og ég bara fíla þetta nice umhverfi. Ekki þetta leiðinda rembuumhverfi sem er oft heima. Margir svo mikið í vörn og blalala. Ég tók myndir af þeim sem ég var að spjalla við. Þau eru á 1.ári í B.a námi. Massana skólinn er enn ekki kominn með M.A námsgráðuna en það er víst í bígerð. Mig langði bara að segja fokk við þessari BA minni og fara aftur í þennan skóla. Bara í smá klass í smá stund. OHH ég alveg elskaði þessa byggingu. Umhverfið æði. Nemendurnir eru svo með kaffihús úti í miðju skólans en þetta er klassísk rómantísk bygging U-laga og mikið líf úti í miðju byggingarinnar. Adrei varð ég neitt vör við svona stemningu í LHÍ?? Anyway, ég er nú samt mjög þakklát og ánægð með mína menntun og allt það. Hér er bara hugurinn annar. Margt hér hefur bara verið svo lengi í menningunni og allt miklu opnara og eðlilegra. Hér finnst mér ég skilja hlutina betur. Veit ekki?? En svona er þetta bara. Þegar ég fór á Römbluna aftur guð þá bara varð ég fyrir áreiti frá kk!! Hver á eftir öðrum eltu mig og reyndu að tala við mig og blalalgalgla, löbbuðu við hliðiná mér og fokk. Ég var sko ekki hrifin. Reyndi að fara inní búðir og fela mig. Ég var bara í hálfgeru sjokki. Kannski svona góður hairday??? Settist svo úti við kaffihús á Römblunni þegar ég losnaði við þann 3.ja og var guðs lifandi fegin að stinga af. Meria ruglið. Kona við hiðiná mér sá þetta víst og við spjölluðum aðeins saman. Hún talaði reyprennandi ensku og var frá Póllandi. Fengum okkur hvítvín og svo kom þessa líka meiriháttar skemmtiatriði...Greinilega leiklistanemi eða álíka og vá, hann bara fór á kostum. Ég grét úr hlátri!! Hann tók fólk fyrir og svoleiðs gerði grín að því,  bjó til ótrúlegustu show úr crowdinu. Henti sér í stéttina að kíkja undir pils og veit ekki hvað. Tók fullt af myndum, ekki annað hægt. Hann átti bara athyggli okkar allra sem sátu þarna. Meira krúttið. Fór svo heim um 19 í mitt kósý casa. Helti mér uppá gott kaffi. Kíkti á msn ið og jú, Hann Bjarki hafði bara engan tíma fyrir mig, hevv...Með 2 gesti?? Ég sem er í geggjuðu stuði hehe.