Dagur 10 í Barcelona:
Vöknudum snemma og lögdum af stad í heilmikid ferdalag í Montserrat klaustrid. Thetta var rúmlega klst í lest fram og tilbaka.
Vid lentum audvitad í ævintyri á leidinni, misstum af lestinni sem fór alla leid uppeftir svo vid thurftum ad taka 2 sem fóru áleidis med hjálp spænskrar stúlku sem taladi ekki stakt ord í ensku. Nánast alla leidina ad klaustrinu voru adeins Idnadarsvædi og einstaka bæir, sumir mjög fátæklegir og illa útlítandi. Svo forum vid ad nálgast thesis líka thvílíku fjöllin og bæng!! Tharna var klaustrid, lengst uppí klettunum. Vid höfum bara aldrei séd annad eins og thvílíkt ævintyri hjá okkur. Vid fengum nett panik hláturskast thegar vid sáum farartækid okkar uppí klettana en thad var kláfur sem fór frá lestarstödinni og uppí klaustur og engin smá gedveiki thad var. Vid völdum audvitad kláfinn thegar vid keyptum ferdina en annars er líka hægt ad velja ad fara med lest uppí fjallid. Thad var ótrúlegt ad sjá yfir thessa nátturufegurd og vid urdum ekkert hræddar inní kláfnum, kannski smá fidringur fyrst en svo allt búid. Ég fékk rosalegar hellur á leidinni upp, heilmikill thrystingur útaf hædinni. Ég hef aldrei gert eitthvad svona ævintyralegt og engin okkar vissi almennilega hvad vid vorum ad fara sjá. Vid skodudum klaustrid sjálft og thad er ekki hægt ad lysa hvad thad var klikkad flott. Skodudum listasafnid, thad er ekkert smárædi sem munkarnir hafa eignast af list og thjódminjagripum. Vid vorum örugglega 2 klst ad skoda safnid. Sáum verk eftir alla helstu málara Spánar, Frakka og svo lengi mætti telja. Vid vorum ad fá okkur kaffibolla uppí fjallinu eftir langan langan dag thegar vid föttudum ad sídasta lestin væri ad fara eftir 25 mín og vid enn uppí klaustrinu!!
Vid hentumst af stad og kaffid skilid eftir, rétt misstum af 1 kláfnum en nádum næsta sem fór 15 mín sienna. Sem betur fer eru their snöggir nidur. Thegar vid settumst á lestarstödina kom thessi líka úrhellisrigning, engin smá riging. Vid vorum svo heppnar ad vera undir thakskyli og hugsudum náttúrulega ad tharna hefdu gudirnir verid gódir vid okkur vegna thess ad vid vorum ad koma úr klaustrinu. Vid vorum svo búnar á tví eftir daginn. Komum heim kl 20:00
Engin ummæli:
Skrifa ummæli