þriðjudagur, maí 13, 2008

Dagur 1 í Barcelona

Nóttin var strembin, Hrönn var með hægðartregðu um nóttina og yfirkeyrsluþotuþreytu. Ég gaf henni nokkra á´ann og svaf vært eftir það. Dagurinn hófst með smá LOST, við vorum blanco og áberandi clueless. Hrönn tók svo yfirhöndina yfir kortamálunum, staðsetti okkur og þaðan var þrammað réttar áttir allan daginn. Við höfum báðar varla orð yfir fegurð borgarinnar, endalaust af fallegum torgum með ótrúlegum listaverkum. Allt hér virðist mjög snyrtilegt. Ég átti erfitt með að slaka á í byrjun vegna ímyndaðra þjófa, jafnvel gamalt fólk og villikettir fengu augnráð frá mér. Við gengum svo niður á Plaza de Cataluna þar sem við stukkum uppí túristastrætó sem tók okkur túr um borgina. Fyrsta og líklega svakalegasta stoppið var Sagrada de Familia og mér brá þegar kirkjan, í miðri húsakliðjunni, þyrmdi yfir okkur. Það var súrrealískt að sjá hvernig svona bygging stendur í miðri kösinni þar sem allt normal líf er normal og byggingarframkv enn í fullum gangi. Þvílík stund, þvílík fegurð og furðuverk þessi kirkja er.  Gaman að sjá hvernig hið nýja sker sig út frá því gamla sem Gaudí gerði. Við Hrönn tilltum okkur á kaffihús sem var beint fyrir faman kirkjuna, þar kom harmoníkuspilari sem tók einkaspil fyrir Hrönnsu og hrönn alveg elskaaði það. Við héldum áfram rútuferðinni og sáum margar Gaudí byggingar og fleirri glæsibyggingar svo sem Museum National D´arte sem er við Plaza d´Espana og vá vá, hvernig er svona hægt!! Allt saman, byggingin og aðkoman að henni alveg stórklikkaður landslagsarkitektúr með stærstu gosbrunnum sem ég hef séð sem ná langa leið niður frá byggingunni en safnið er uppá töluverðri hæð og stigar alla leið upp. Auðvitað gengum við uppá topp!! Gosbrunnarnir voru ekki í gangi þegar við komum en þeir eru í gangi frá fimmtud - sunnud frá 21:00 - 23:30 og þá eru þeir upplýstir með kösturum alla leið uppað byggingunni. Rosalega flott torg, Plaza d´Espana, mæli með því. Röltum svo heim rúmlega 18:00, versluðum í matinn og fengum okkur gómsætar samlokur og sjóðandi kaffi í desert.mmmm ..Fullkominn dagur..fyrir utan hvað Hrönn er erfið. Ég kvíði fyrir nóttinni...
Ps..haldiði ekki bara að við séum nettengdar hér heima þrátt fyrir að svo eigi ekki að vera!
Við eigum hér huggulega kvöldstund á móti hvorri annarri og bloggum og hlæjum til skiptis.

1 ummæli:

Unknown sagði...

bella bella, verð í barcelona á mánudag mmmmmm verðið þið ennþá? Knús til ykkar systra, Magga