laugardagur, maí 24, 2008

Dagur 11 í Barcelona




Opnunardagurinn í galleríinu sem ég er að sýna í..þá opinber opnun. Mikið skýjað í dag en sást pínu í sólina annað slagið. Við skelltum okkur beint á Starbuckið okkar til vinar okkar. Hann man meira segja hvað við pöntum..og er að sprynga úr hressleika. Mér líður eins og ég sé á spítti eftir að hafa talað við hann. Óla keypti nánast allt kaffið í búðinni þar sem hún fer heim til Kanarí í dag og þar er víst mjög vont kaffi. Við röltum niðrí bæ, Óla og Hrönn reyna mikið að fá mig til að eyða peningum og vera góð við sjálfa mig en ég ákvað að láta ekki undan. Ég þoli ekki hópþrýsting.  Við endum eins og oft áður á torginu við Catedral Spánar, fáum okkur ljúfan mat, ohh salatið var svo gott sem ég fékk mér. Þetta er búið að vera meiriháttar hjá okkur tres logos, og held bara að ég eigi eftir að sakna kaffisjúka svertingjans. Hún og Hrönnsa fóru með leigubíl uppá völl. Ég tók mig til og fór niðrí gallerí. Ég er að segja það, svitafýlustækjan náði útá götu. Hvað er að þessum útlendingum. Þó það sé vatnsskortur á Spáni mega þeir alveg baða sig við og við. Ég er enn að undrast yfir frábærri mætingu á opnuna en þar voru s.s. þeir sem voru að sýna í galleríinu. Gaurinn, Karel Stoop, vinir hans og ég. Ljótu ljótu vinir hans,,ágætis listamenn og gott fólk en rosalega ljótt. Mér leið eins og ég væri í sirkus. Ég ákvað að vera jákvæð og sanngjörn, hlæja mikið og hafa gaman. Það varð gaman og ég vona bara að lyktin dofni svo einhverjir gestir vogi sér þarna inn og kannski kaupi myndirnar mínar. Ég rölti eitthvað áleiðis á bar, hitti þar breska dömu sem var að koma til Bcn í fyrsta sinn líka. Hún var að bíða eftir manninum sínum, hann var írskur og algjörlega alveg eins og evan mcgregor, bara nettari, mjórri. Þau voru æði og við smullum saman, ég þurfti ekkert að hætta mínum dónaskap enda algjörlega írskur húmor, svartur og soðinn. Ég fór út með þeim að borða og svo á 1 bar eftir það. Síðan lá leiðin heim eftir gott og skemmtilegt kvöld. Hrönnsa ákvað að leggja sig eftir flugvallarförina, nennti ekki í gallann og sminkið. Hún hefði líka algjörlega rústað stemningunni með AA augunum sínum hehe.

Engin ummæli: