laugardagur, maí 24, 2008

Dagur 12 í Barcelona





Rosa fínn dagur, við Hrönnsa hittumt á Starbucks uppúr hádeginu. Ég kom seinna, smá þynnka. Pöntuðum kaffi hjá vini okkar sem var jafnvel enn tjúnaðari núna en síðast. Brjálað að gera en samt nær hann að vera súpertjúttaður og auðvitað með pöntunina á hreinu. Við röltum svo áfram í óvissuna, fundum skemmtilegan götumarkað þar sem ég keypti mér æðislegt hálsmen sem ég alveg digga, löbbuðu svo að Sagrada kirkjunni, fallega vinkona Hrannar var ekki að vinna á Starbucks hjá Sagrada í dag. Hrönn var nefnilega að spá í að bjóða henni að koma með sér til Íslands, mikil vonbrigði. 
Áfram var haldið í leitinni að stóra dildónum, bygging sem er eins og risa risa víbrador. Við löbbuðum heillengi uppámóti þar til við ákváðum að fara yfir götuna þá kemur í ljós að dildóinn trjónir yfir öllu í akkúrat þveröfugri áttinni. Við öskruðum náttúrlega af sjokki og snérum tilbaka. Dildóinn hlýtur að vera spila með okkur, sjónhverfingadildó því við vorum svo að leita að honum og svo birtist hann alltíeinu sísvona.  Fórum inní dildóinn og þetta er nú ljóta byggingin, svona í alvöru. þetta eru skrifstofur og inní þessu var nada, bara nada að sjá. Á kvöldin lýsist byggingin upp í nokkrum litum. Við vorum agalega ánægðar með það sem var að sjá og kaupa í molli rétt hjá. Ógeðslega flott H&M búð og aðrar mjög líka. Veðrið var gott, sól og blíða. Við tókum metróið til baka heim enda búnar að vera á röltinu í 7 klst..Not Bad!! 

Engin ummæli: