sunnudagur, maí 25, 2008

Dagur 13 í Barcelona




















Mígandi rigning. Við Hrönnsa héngum innandyra til að verða 15:00 Okkur langaði ekki mikið útí þetta regn. Engin regnhlíf til á þessu heimili svo við beðum aðeins og stukkum svo út í kulið. Keyptum okkur ágætis regnhlíf á 400 kr. Fórum með lest í Sædýrasafnið. Það var biðröð þangað inn, sennilega allir að hugsa eins og við, gera eitthvað innandyra í þessu votaviðri. Veðrið tók aldeilis kipp, líklega um að leyti sem við gengum út með nýju regnhlífina. Rigningin hætti og við drifum okkur uppi Sagrada kirkjuna til að fara uppí turnana. Fyrst fórum við á Starbucks við Sagrada, vinkona Hrannar ekki að vinna. Fengum okkur samloku og drykki og héldum svo uppí kirkju. Við innganginn kom í ljós að lyftunum hefði verið lokað vegna veðurs..hahah, smá rigning og game over. Rigningin var meira segja hætt en við greinilega ekki að fara þarna upp í þetta sinn, búnar að koma þarna 3x Um kvöldið fórum við svo út að borða. Ætluðum að borða á Ítölskum stað sem átti að vera í götunni sem Urður, vinkona Hrannar, bjó í en hann greinilega hættur. Fundum síðan stað rétt hjá galleríinu mínu sem er nálægt  Born götunni og í gamla bænum. Mjög fínn staður, góður matur og kósý casa. Ótrúlegur hávaði samt þarna inni í fólkinu, eins og fuglabjarg enda þétt setið og lítill staður. Við úðuðum í okkur og hentumst svo út í síðustu lestina heim rétt fyrir 12

Engin ummæli: