miðvikudagur, maí 28, 2008

Dagur 15 í Barcelona( þriðjudagur)



Dagur 1 án Hrönnsu gekk bara vonum framar. Ég er bara duglega. Hentist á pósthúsið og svo á Starbucksið okkar með hressa kallinum. Fékk upplýsingar hjá þeim með hvar listaskólinn væri sem ég ætlaði að skoða. Hann heitir Escola Massana og er í Carrer de Hospital sem er út frá Römblunni. Það var ágætt veður í dag og sól með skýjum að flækjast fyrir af og til. Ég rölti um allan bæ og fór nýjar götur og skoðaði í margar búðir sem ég hafði ekki rekist á. Það eru endalausar búðir í öllum hliðargötum. Er mikið að leyta mér að tösku sem ég kem t.d. fötum í þar sem manni er kalt og heitt til skiptis. Líka fyrir tölvuna. Finnst bara allt hér helvíti dýrt!! Endaði labbið á torginu okkar Hrannar fyrir framan Catedralið. Maður er bara alltaf hér. Fékk smá sólbað þar, voru mikil læti í nágrenninu, hljómaði eins og á fótboltaleik en ég komst að því að þetta voru verkamenn að mótmæla launakjörum. Ég fór náttúrulega að taka myndir. Voða stuð. Fór svo á veitingastað og keypti mér salat og hvítvínsglas, vino blanco del casa. Þaðan rölti ég svo niður í átt að Born götunni, fór í hálfgerða kaffiverksmiðju með sekki af kaffi, valdi gvatemala del Sanfransisco eitthvað. Það var auðvitað malað fyrir mig og lyktin!!! MMMM, hlakka til að smekkeeaa. Fór svo á barinn minn með fína barþjóninum. Ég fór þangað á föstudaginn eftir opnunina og hann brosti þegar hann sá mig. Sko maður er bara alveg að hafa þetta af. Gaman að geta spjallað við einhvern, við skildum hvort annað voða lítið en samt reyndum. Ég pantaði mér 2 drykki og hann bauð mér uppá 1 drykkinn, langaði að gera eitthvað óvænt fyrir mig. Rosagóður jarðaberjadrykkur þeyttur í blender. Fullt af klökum og romm útí:) Þetta er alla vega þjónninn minn í þessari ferð og barinn minn. Lítill og pínu spes. Góður starfsandi, stelpurnar rosalega fínar. Ég meira segja kvaddi þær sérstaklega áður en ég lagði af stað heim. Kl þá rúmlega 7, stoppaði í leiðinni í myndlistabúðinni minni. Hún er á Carre de Ferran sem er í hliðarg frá Römlunni líka. Strákurinn sem vinnur þar er líka rosalega fínn. Hann afsakaði sig að vera ekki búinn að fara á sýninguna mína þegar ég kom í dag. Hann man eftir mér frá heilli viku síðan? Það er flott. Sagðist vera vinna til hálf níu alla daga. Þetta er mikil túristaborg og borgin er að fyllast af túristum. Maður sér alveg mun frá degi til dags. Keypti mér 2 mjóa pensla og 1 spjald til að mála á.

Engin ummæli: