miðvikudagur, maí 28, 2008

Dagur 16 í Barcelona



















Dagur 2 án Hrönnsu minnar. Útlit fyrir góðan dag. Tók lestina niðrá Römblu eftir að hafa rölt góðan gang hér í umhverfinu og spurst fyrir um internetkaffihús hér í hverfinu. Ekkert kom út úr því  en ég komst á netið á McDonalds í miðbænum. Meiriháttar að komast í svona. Keypti mér ekkert að boða enda ekki alveg mitt uppáhald. Frítt og gott. Ég fór svo á rambið eins og vanalega. Fann ástartöskuna mína ohh bara elska hana. Keypti mér í sömu búðinni tösku undir tölvuna mína. Var að stefna að finna Massana listVeaskólann. Fann hann og fór inn, skoðaði og fór meira segja inní stúdíóin, talaði við nokkur sem voru að mála og vá hvað mér leist vel á þennan skóla. Þarna er listagyðjan sveimandi yfir öllu. Ég bara fann það. Þau voru líka bara svo fín og ég bara fíla þetta nice umhverfi. Ekki þetta leiðinda rembuumhverfi sem er oft heima. Margir svo mikið í vörn og blalala. Ég tók myndir af þeim sem ég var að spjalla við. Þau eru á 1.ári í B.a námi. Massana skólinn er enn ekki kominn með M.A námsgráðuna en það er víst í bígerð. Mig langði bara að segja fokk við þessari BA minni og fara aftur í þennan skóla. Bara í smá klass í smá stund. OHH ég alveg elskaði þessa byggingu. Umhverfið æði. Nemendurnir eru svo með kaffihús úti í miðju skólans en þetta er klassísk rómantísk bygging U-laga og mikið líf úti í miðju byggingarinnar. Adrei varð ég neitt vör við svona stemningu í LHÍ?? Anyway, ég er nú samt mjög þakklát og ánægð með mína menntun og allt það. Hér er bara hugurinn annar. Margt hér hefur bara verið svo lengi í menningunni og allt miklu opnara og eðlilegra. Hér finnst mér ég skilja hlutina betur. Veit ekki?? En svona er þetta bara. Þegar ég fór á Römbluna aftur guð þá bara varð ég fyrir áreiti frá kk!! Hver á eftir öðrum eltu mig og reyndu að tala við mig og blalalgalgla, löbbuðu við hliðiná mér og fokk. Ég var sko ekki hrifin. Reyndi að fara inní búðir og fela mig. Ég var bara í hálfgeru sjokki. Kannski svona góður hairday??? Settist svo úti við kaffihús á Römblunni þegar ég losnaði við þann 3.ja og var guðs lifandi fegin að stinga af. Meria ruglið. Kona við hiðiná mér sá þetta víst og við spjölluðum aðeins saman. Hún talaði reyprennandi ensku og var frá Póllandi. Fengum okkur hvítvín og svo kom þessa líka meiriháttar skemmtiatriði...Greinilega leiklistanemi eða álíka og vá, hann bara fór á kostum. Ég grét úr hlátri!! Hann tók fólk fyrir og svoleiðs gerði grín að því,  bjó til ótrúlegustu show úr crowdinu. Henti sér í stéttina að kíkja undir pils og veit ekki hvað. Tók fullt af myndum, ekki annað hægt. Hann átti bara athyggli okkar allra sem sátu þarna. Meira krúttið. Fór svo heim um 19 í mitt kósý casa. Helti mér uppá gott kaffi. Kíkti á msn ið og jú, Hann Bjarki hafði bara engan tíma fyrir mig, hevv...Með 2 gesti?? Ég sem er í geggjuðu stuði hehe. 

Engin ummæli: