föstudagur, maí 30, 2008

Dagur 18 í Barcelona





















Fór fyrst að skoða MACBA,,eða Museu d´Art Contemporani de Barcelona. Órtúlegt bygging og mikið respekt. Skrítið að sjá lífið í kringum bygginguna. Fólk bara hangir þarna í kring, situr eða skeytar á hjólabrettum..bara að dóla sér eitt oft.
Maður sér líka alveg að þetta eru oft listatýpur en ég veit ekki alveg hvort ég hefði gaman af að hanga fyrir utan Kjarvalsstaði eða Listasafn Reykjavíkur?!! Hér er bara annar fílingur og ég fíla hann. Ég fór svo niðrí Galeria Zero þar sem ég er að sýna. Það var búið að setja nafnið mitt við verkin og taka myndirnar hans Karels frá. Ég varð voða fegin og líka að við náðum að slétta úr öllum málum. Ég útskýrði mín vonbrigði en í leiðinni sagði ég að mér hefði fundist leiðinlegt að þetta hefði orðið svona í gær. Þetta væri 1. sýningin mín erlendis og ég hefði ákv væntingar en um leið þá hefði ég átt að fara í þessi mál fyrr. Hann var mjög fínn og við spjölluðum aðeins meira um framhaldið. Ég tek niður myndirnar mína á mánud milli kl 17 og 18 og fer svo uppá völl um 20:30 um kvöldið. Mér létti mikið mikið eftir að hafa farið og talað við hann. Var voða dauf í gær. Hann bauð mér aftur að taka þátt. Þetta er hálfgerðr listaráðstefna sem hefst 12. júní. Allir listamenn með 1 -2 verk og ég ákvað bara að skella mér á þetta og gera bara 1 verk áður en ég færi. Ég hef alveg tíma og nóg að listaöndum yfir mér eins og er, varla annað hægt hér í þessari borg. Fór í myndlistabúðina mína á Ferran götunni. Vinur minn þar er farinn að heilsa mér og kveðja með nafni! Ekki leiðinlegt. Við spjölluðum helling um myndlist. Ég lét hann fá myndir af verkum eftir mig og hann ætlar að senda mér einhverjar myndir af sínu stöffi. Ég sagði honum frá heimsókn minni í Massana myndlistaskólann og ég hefði alveg fallið fyrir byggingunni og andanum þarna en þá tók hann 1. árið þar og er að fara aftur til að klára. Var mjög hrifinn að skólanum og langar mikið að klára. Hann hefur alltaf gefið mér listamannaafslátt og núna gaf hann mér aðeins meiri afslátt enda erum við orðnir svo góðir vinir hehe. Ég bað ekki um neitt, hér eru bara menn svona. Þeim líkar hvað þeir sjá og heyra og vilja bara vera næs...ekkert flóknara en það. Ég keypti mér viðarplötu, 80 x 61 cm, búið að pússa yfir hana. Keypti líka 3 liti, 1 akrýl til að grunna með og 2 olíu auka við hitt sem ég keypti um daginn.
Myndin sem ég er að gera fyrir sýninguna 12.júní "No me gustar del Frio" er eimitt á þessar viðarplötu. Ég man bara frá því í LHÍ þegar ég málaði á viðarplötur, hugsunin breytist þegar ég mála á þannig efni. Ábyrgðin fer og mér virðist vera auðveldara að kasta fram einhverju en á striga sem kostar 10.000 kr..Kannski no wonder that golden crispee. Nýja myndin sem ég vona að heppnist og ætla að skilja eftir..:Hvað segir annars betur en þetta að mörgæsinni líki ekki við kuldann..en svona er ég bara. Íslensk en samt ekki alveg og svo hefur hún líka margar meiningar eins og ekki alltaf er náttúran eins og hún á að vera. Þú lítur út fyrir að vera hitt og þetta en eitthvað er ekki í takt við þitt umhverfi og örlög.?? Er búin að teikna mikið undanfarna daga og sérstaklega eftir að Hrönn fór.
Ps. ég lenti mikið í því í dag að vera mæta mönnum og þeir heilsa mér HOLa Guapa án þess að sé nokkur ástæða hehe. Þetta finnst mér fyndið og kannski er þetta bara létt meint. Ég svara þessu ekki og veit ekki alveg hvort ég ætti að vera segja HOla á móti..Ekki segi ég Hola Guapo hehehehe. Þá lendir maður kannski í krísunni:)

Engin ummæli: