Við Hrönn vöknuðum í hita og svækju. Nú eigum við allan matinn í ísskápnum og létum allt gossa í eldhúsinu. Gengum niður La Rambla, sáum fullt af götulistamönnum sem hreyfðu sig ekki nema að fá skylding. Þar var líka mikið af málurum og fleiru handverki. Þaðan fórum við niðrá höfnina sem var stútfull af rosalegum skútum. Við gengum yfir hafnarbrú yfir í Mall sem okkur fannst sem betur fer ekki neitt spennó. Gengum þaðan í gamla bæinn og þá lifnaði yfir Söndru Maríu, litla fýlupúkanum. Frábær bær og meiriháttar líf og allt morandi í rosalega flottri og töff list og handverki. Keypti mér 2 lítil málverk sem ég er alveg skotin í. Allt annað andrúmsloft þarna og blandaðri menning. Kíktum inní Villa del Arte galleríið www.villadelarte.com
Þar var fínasta verk eftir listamanninn Fernando Alday sem var á 6.7 miljónir. Skoðuðum, Catedral de Barcelona, rosalega falleg kirkja í gotneskum stíl. Fyrir utan innganginn voru nokkrir þurfalingar búnir að raða sér upp og 2 meðal annars með engar hendur og enga fætur. Þetta hef ég aldrei séð. Á leið út úr kirkjunni gat maður auðvitað ekki annað en auðmjúkast yfir þeim með nokkrum aurum. Hrönn bauð þeim að gista en ég var fljót að hósta ofaní það. Keypti surprise gjöf handa me marido, vona að hann verði ekki frio og svo gerðum við Hrönn það ótrúlegasta, tókum metróið heim!! How cool is that..
2 ummæli:
Vá hvað þetta hljómar allt spennandi!
og þið svona duglegar að rölta út um allt! Hefði sko ekkert á móti því að vera þarna með ykkur. En takk fyrir að vera svona dugleg að skrifa!
kossar og knús
Beta
De Nada bonita Sernora Beta. Vorum að koma frá geggjaðasta ljósa og gosbrunna showi ever! Svo var spiluð klassísk tónlist undir og vatnið breyttist í takt.
Þú hefðir sjúklega gaman af að vera hér
Skrifa ummæli