Dagurinn hófst snemma. Við vorum komnar í metróið um 9 og fórum beint með Ólu systur að sjá Sagrada Familia. Hún hefur aldrei séð neitt eftir Gaudí og aldrei heyrt til hans getið. Það er kannski hægt að ímynda sér hvernig hún varð þegar við fórum upp úr metróinu og snérum okkur við og þar blasti kirkjan við okkur..Algjörlega blastaði yfir okkur, þetta er svo magnað að sjá hana svona nálægt. Löbbuðum svo um miðbæinn og í gamla bæinn. Sáum gamlar grafir sem er greinilega einhver nýfundur og var girt af. Þegar við horfðum niður á grafirnar sáum við nokkur veski og vísakort liggja þar í jörðinni, auðvitað eftir þjófnað! Þetta er allstaðar. Allar stærri búðir og keðjur voru lokaðar, sunnud. eru heilagir dagar hjá spánverjum. Minni verslanir, hönnuðir o.þ.h. voru mikið með opið og kaffihúsin. Um kvöldið fórum við að horfa á Font Magica og ég upplifði showið ennþá sterkara en á fimmtud. kvöldið þegar við Hrönn sáum showið fyrst. Þá var maður aðeins og upptekinn af að taka myndir en núna var ég ekki með vélina og athygglin á réttum stað greinilega. Ég táraðist,,sorry but that´s true, þetta er bara svo fallegt og kraftmikið.
mánudagur, maí 19, 2008
Dagur 6 í Barcelona (sunnudagur)

Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli