mánudagur, maí 19, 2008

Dagur 7 í Barcelona



Í dag var gallerí dagur hjá mér. Við fórum seinna út en venjulega enda fylgdi smá dót með málverkunum og ég átti að mæta niðrá galleríið kl 14 með verkin. Hrönn og Óla hjálpuðu mér að bera. Guðrún var mætt í galleríð. Ég setti saman málverkin og skildi þau svo eftir. Guðrún kom svo með okkur systrum á rambið um gamla bæinn..í Born hverfinu og í Ravel hverfinu. Enduðum svo eftir góðan sopa á Starbucks í Casa Batlló, gríðarlega meiriháttar bygging sem við skoðuðum að innan og fórum uppá þakið líka. Það var eitthvað mikið um að vera í húsinu, einhver spænsk stjarna og þjónar útum allt á einni hæðinni sem var lokuð öllum og fyrir utan bygginguna voru unglingar búnir að raða sér upp með penna og skrifblokkir að fá eiginhandaráritanir þegar við komum út. Við spurðum hvað væri að gerast og þá var einhver bissness gaur að fara koma með glæsikerru inní Casa Batlló. Það var meira segja búið að leggja rauðan dregil fyrir framan innganginn þegar við gengum út úr byggingunni, mjög fyndið. Ég sæi það í anda ef unglingar á Íslandi væru að bíða í röð eftir eiginhandaráritun hjá gaurum eins og Bónusfeðgum? Þegar þessari skemmtilegu skoðunarferð var lokið fórum við heim og Guðrún til sín. 

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vá, mikið eru þetta búnir að vera viðburðaríkir dagar hjá þér. Væri sko alveg til í að vera þarna hjá þér að selja listina og njóta borgarinnar og lífsins.
Ég kom heim frá Köben í gær og fer svo aftur næsta miðvikudag! (eins gott að ég sé eitthvað að flakka til útlanda líka annnars yrði ég græn!)
hlakka til að heyra af fleirum ævintýrum ykkar systra
kossar og knús
Beta bjútýbolla

pensillinn sagði...

Ohh eins og ég sagði þá væri sykk gaman að hafa þig