sunnudagur, maí 25, 2008
Ojjj bara Evrovisjón
Gríska lagið var skítt, þreytandi og ógeðslega 14 ára gelgjulegt. Þreytandi klígjulegt. Grikkir sem koma með Britney Spears og allar austantjaldsþjóðirnar kjósa þetta..Hélt þeir hötuðu vestræna músík, þeir voru lengi að berjast um 1. sætið en á endanum tók titturinn frá Rússlandi þetta. Vá hvað þetta var spennandi keppni, bæði lögin jafn óþæginleg og þreytandi. Rússatitturinn sem þorði ekki að standa uppúr gólfinu því hann var svo lítill. Ég heyrði lagið 2x í gær og ég man EKKERT hvernig það var..edrú, ekki dauðadrukkin hehe. Ég sé bara ekkert annað en pólitík þegar ég horfi á þessa keppni. Þjóðir að kyssa rassinn á öðrum þjóðum. Ég hef í mörg ár ekki skilið hvers vegna við erum að eyða peningunum í þetta. Við vorum svo ógeðslega ólík öllum í lagavali og greinilega að gera snarvitlausa hluti. Plís ekki segja mér að við munum reyna sleikja rassinn á þessu liði á næsta ári og gera austantjaldsþunglyndisdrama lag. Það væri enn meiri skömmin en þessi. Þessi keppni er ekki fyrir okkur, mig langar alls ekki að tala meira um þessa kjánalegu keppni en maður vill samt alltaf að dómgæslan sé sanngjörn og sama í hverju þá vill maður réttlæti.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
æj mikið hljómar þetta ævintýri skemmtilegt hjá þér. Nú eru bara 2 dagar þar til ég fer aftur til Köben og núna á að mála bæinn rauðann! ÉG er þegar farin að kvíða fyrir þynnkunni!
Hvernig eru annars galleríin þarna úti? eitthvað spennandi?
góða skemmtun darling
kossar og knús
Beta
Hef ekki skoðað nóg af galleríum, ekkert séð enn af neinu sértaku í þeim geira. Núna er ég ein, Hrönnsa farin. Ég mun nota tímann sem eftir er að skoða galleríin og þ.h. listastuff. Skemmtu þér hrikalega vel og vertu ekkert að spá í þynnkunni. Drekktu bara nóg og rokkaðu feitt. Það er alltaf gaman þar sem þú ert.
Skrifa ummæli