miðvikudagur, desember 14, 2005

Long time since

Þá er þessi sýning búin. Hún heppnaðist bara vel sem heild og hafði aðeins fjölbreyttara yfirbragð en þær fyrri. Það voru video og hljóðverk, innsetningar og hljómsveit, teikningar og málverk. Sorrý til allra en ég vil lýsa því yfir að ég bauð engum á sýninguna, bauð að vísu fólkinu í vinnunni en ég var eitthvað down með þetta þar sem myndin af Bjarka misheppnaðist bigtime. Það var ágætis mæting á köflum en heldur rólegt þar á milli. Ég var persónulega ekki ánægð með mín verk en við í heild stóðum okkur bara vel og auðvitað gladdist maður yfir því. Við vorum á mörkunum að hætta við jólasýninguna en sem betur fer kýldum við þetta bara af, mössuðum sýninguna og allir urðu glaðir með það eftir á. Maður hafði ekki sofið í 2 daga auk þess að eiga erfitt með svefn en nú er farið að sjást aftur til sólu. Nú þarf maður að fara huga að jólunum, gera jólakort og huga að gjafamálunum. Ég hengdi upp seríur í gær, ekki seinna vænna. Mér var farið að líða eins og Scrootch ætti heima hérna. Nói er veikur, þessar pestir eru alveg ótrúlegar. Hann er með hálsbólgu og ljótan hósta. Hann var líka með rennu um daginn sem er eitthvað að lagast núna. Finnst hann líka vera með hita núna, en ekki háan.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ krúslan mín. Við þurfum að taka nettan lessuhitting á nýja árinu til að lyfta þér upp.

Kv,
Guðný

Little miss mohawk sagði...

Er pínu móðguð að hafa ekki fengið boð :) finnst alltaf svo gaman að koma !