Þetta var bara langt og skemmtilegt afmæli. Mikið talað og kátt á hjalla. Bjarki mætti þarna í klukkutíma, var að vinna allan daginn. Eru að breyta skrifstofuaðstöðunni í Myndform. Hann er kominn aftur á gamla vinnustaðinn og er bara ánægður með það skilst mér. Annars tölum við Bjarki ekki mikið saman, þannig er það best. Erum súperþjálfuð í augngotum og andliststjáningum..
Benjamín var að verða 3ja ára og Gunnar Axel, uss, held 10 ára. Ég leiðrétti þetta bara ef þetta er vitlaust.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli