laugardagur, janúar 26, 2008

Allt gott en þú?




Nú er ég á uppleið eins og maður segir en ég hef verið dáldið of djúpt hugsi varðandi listina og hún tekur á. Á gerir alveg annað en að mála, hljómar oft eins og ég geri ekkert annað. Dagga systir var hjá mér í síðustu viku í 1 dag en Rósa og Garðar komu með henni í stutta heimsókn þegar þau sóttu Döggu útá völl. Rósa Lilja hefur alltaf verið ljóshærð, rosa breyting á gellunni. Mér finnst hún miklu flottari svona, klæðir hana óttrúlega vel. Þetta eru kannski ekki bestu myndir af þeim mæðgum, ég ógeðslega skemmtileg að setja þær samt inn:) Það er frábært að eiga nóg pláss fyrir gestina:) Pöntuðum okkur pizzur og kjöftuðum langt framá kvöld. Ekta Múlavegur 23

Engin ummæli: