þriðjudagur, maí 24, 2005

Istanbúl

Bjarki fór klukkan 5 í morgun ásamt pabba sínum, bróður og afa til Istanbúl með stoppi í London. Þetta er 12 tíma ferðalag.
Hann er að fara á leikinn á morgun, Liverpool-AC Milan og er bara spenntur. Þetta er risa pakki og svo er landið pínu sceary og því var maður í fyrstu svolítið stressaður með þetta en svo rankar maður við sér eftir kastið og sér að lífið er bara ekki svona,
svona hættu Sandra, vertu ekki að lemja hausnum í klósettskálina, hættu hættu. Já, svona var það nákvæmlega.
Nú er Bjarki á strippbúllu með afa sínum sem er mjög mikið fyrir stór brjóst svo ég fyrirgef honum Bjarka mínum þar sem hann er að gera þetta fyrir afa sinn og hann er sá sem bíður þeim öllum í þessa ferð.
Bjarki og Böðvar bróðir hans verða eftir á fimmtudeginum í London en feðgarnir, Gunnar og Böðvar halda heim á leið.
Vonandi verður bara Liverpool sigur svo allt fari eins og í ævintýri.

Engin ummæli: