fimmtudagur, ágúst 11, 2005
Fyrsti starfsdagurinn minn á morgun........
Já komið þið sæl eða eitthvað. Í fyrramálið er maður bara farinn að vinna á leikskóla í Garðabæ. Hann er enn í smíðum en verður að mestu tilbúinn að innan á morgun. Þetta er rosa flottur leikskóli, opinn og stílhreinn. Vinnuaðstaðan lítur út fyrir að vera mjög góð. Leikskólinn starfar undir Hjallarstefnunni svokallaðari. Það þýðir að strákar og stelpur eru ekki saman á deild en hittast samt í leik eitthvað yfir daginn, svona eins og hjónaböndin eru:) Ég hlakka bara mjög mikið til og er öll spennt. Starfsfélagar mínir virkuðu vel á mig. Ída, gamli bekkjarfélaginn minn frá Seyðis er meðeigandi og er leikskólastjórinn. Mamma hennar, Hrafnhildur, er aðstoðar-leikskólastjóri og svo vinnur Ísey, systir Ídu, með mér á strákadeildinni, þannig að skólinn er kráded af Seyðfirðingum. Það gefur þá auga leið að börnin sem í þennan skóla fara verða að súper brilliant fólki með framúrskarandi persónuleika, svona hógværlega sagt. Ég verð með stráka sem eru á sama aldri og Nói Páll, frábær aldur, læra svo svakalega mikið á þessum aldri.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
til hamingju með djobbið
og baráttukveðjur!! ha ha ha
Til hamingju með þetta Sandra mín;)
kv Íris Dögg
Skrifa ummæli