laugardagur, ágúst 27, 2005
Sýning Skjaldar Eyfjörð er hálfnuð
2 vikur eru eftir af sýningunni hans, svona fyrir þá sem ekki fara inná heimasíðuna mína:) Mjög margir hrifust að verkum hans og hann er búinn að selja um 5 myndir, enn sem komið er. Opnunin var flott..mjög flott og skemmtileg. Hann var svo flottur á því að ég varð fyrir piffaníu að sjá hversu skemmtilegt er að ganga skrefinu lengra þegar kemur að hlutum eins og að halda opnun, veislur o.þ.h. Hann keypti alls kyns tropical ávexti sem hann raðaði í kringum barinn og var með tropical bollu, ásamt öðrum drykkjum. Þetta setti mikinn svip á sýninguna og undirstrikaði titil sýningarinnar.."Töfragarðurinn". By the way, það verður þemað mitt á meðan ég er sýningarstjóri, að taka myndir af listamönnunum við þennan vegg.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli