miðvikudagur, nóvember 16, 2005
Sjóræningjahauskúpur, þrumur og eldingar..Pony og Malonie
Ég fór á vinnustofuna í gær og motthhh. f... hvað ég er svekkt. Myndin af Bjarka var á réttri leið en þá þarf maður náttúrulega að umturna henni eins og um annað verk væri að ræða, ..svona hér um bil og bara vegna þess að Bjarki var ekki nógu sáttur við hana. Hann er frekar ólíkur sjálfum sér eins og myndin er núna..hefði verið gaman að setja inn mynd af breytingunum en kl. var orðin 1 í nótt þegar ég hætti og ég þurfti að beita öllum vilja í að stoppa mig af, svona eins og í Liar Liar þegar Jim Carrey, var að reyna að krota ekki á sjálfan sig. Ég bíð ólm eftir að komast í að laga myndina en Bjarki er að vinna frameftir og svo fer hann í fótboltann kl. 22 Ég er innikróguð og kolæst í penslana mína. Ég er ekki að íkja one bit þegar ég segi það að ég hef aldrei haft svona mikinn áhuga á að stunda myndlistina af kappi. Ég er hæstánægð með það enda hundgömul að verða og alveg tímabært að fara hundskast af stað.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli