miðvikudagur, október 26, 2005

Heimssýn listamannsins

Hver er mín heimssýn? Út frá hverju skapa ég. Afhverju mála ég eins og ég mála? Það var stúlka úr Fjölbraut í Breiðholti sem hafði samband við mig vegna skólaverkefnis sem hún á að gera. Hún ætlar sér að taka viðtal við nokkra listamenn og fá innsýn inní þeirra heimssýn og listtúlkun á henni. Frábært umhugsunarefni. Mér líst vel á að setjast niður og sortera hugann. Ég held ég hafi ekki hugmynd um hví ég mála eins og ég mála þar sem ég hef aldrei spáð í það og aldrei verið undir nokkru sem kallast áhrif. Einu áhrifin mín er mín skynjun á mér og umhverfinu mínu. Afhverju misskilur fólk oft hvort annað? Ég held vegna þess að fólk skynjar hluti með misjöfnum hætti. Það hefur kannski ekkert að gera með listsköpunina en kannski túlkunina. Myndi ég reyna að setja fastar upphafssetningar á þetta eins og: Heimurinn er fullur af...
Það sem mér kom fyrst upp í hugann var fjarveru-tilveruleiki. Það er búið að búa til fullt af veruleika sem hefur ekkert að gera með lífið sjálft og hvað er á bak við það. Mig langar að sjá á bak við það. Mig langar líka oft að sjá útfyrir það, eins og að búa til enn aðra tilveru sem er eins og frosin og enn fjarlægari tilvera en við sjáum dags daglega. Varðandi mitt eigið innviði þá trúi ég því að ég hafi inní mér túlkun sem ég nota ekki í munnlegu máli og því þarf ég að leita að henni. Þegar ég mála er það yfirleitt beint á strigann og myndina sé ég oft á hreinum striganum. Þetta er oft eins og þegar maður horfir á gólfið hjá sér eða götuna og fer að sjá alls kyns munstur og fólk. Ég kýs að telja að ástæðan fyrir að ég sjái það sem ÉG sé er vegna minnar túlkunar á umhverfi mínu. Þegar ég mála held ég að það sama gildi, ég sé bara það sem ÉG sé. Hvaðan þetta kemur er hins vegar annað og kannski flóknara mál.Það eer alla vega mjög gaman að spá í þessu.

Engin ummæli: