laugardagur, apríl 30, 2005
FRÁBÆRT-ÆÐISLEGT!?
Hvað er málið???
Dísús kræst, hvar byrjar maður að gagnrýna svona dæmi. Þátturinn er svo illa heppnaður að það fær mann til að líða illa. Þessir þættir gætu alveg verið skemmtilegir, svona eins og þegar Hálfdán stjórnaði honum en nú er hann alveg kominn á botninn. Helgi Idol er hreint og beint horror í þessu..JÁ FRÁBÆRT..ÆÐISLEGT..NÁKVÆMLEGA..ALGJÖRLEGA..GLÆSILEGT..frasarnir eru endalausir og alltaf sömu þegar hann svarar..FRÁBÆRT..Það fyrsta sem ég hugsaði var bara, ætli hann tali svona við vini sína. Í einum þættinum var stelpa að tala um eitthvað neikvætt og hann bara..FRÁBÆRT..ÆÐISLEGT. Við Bjarki litum bara á hvort annað??? Þau eru alltof vandræðaleg..alltof. Þátturinn í gær var einstaklega hrikalegur. Helgi toppaði öll mistök, ætlaði að loka þættinum en þá átti eftir að velja eina af þessum 2 konum sem voru ekki valdar og kynnti þær síðan sem 2 herramenn??? Ég vill endilega benda fólki á að tjékka á því hvernig hann stendur. Lappirnar í sundur, útskeifur með mjaðmirnar fram og magann inn, mjög spes. Stelpan er bara ósýnileg, kemur aldrei með neitt og finnst örugglega Helgi drepfyndinn og mjög wild??? Þegar sjónvarpsstöð er að reyna að gera low budget þætti ætti hún frekar að eyða peningum í betri hosta en sviðsmyndina.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

2 ummæli:
hahahaha greyið helgi, uppgirtur og vatnsgreiddur..
kv irish
Ég hef bara ekki gert sjálfri mér það að horfa á þessa þætti. Kv,Guðný
Skrifa ummæli