laugardagur, maí 17, 2008

Dagur 4 í Barcelona

Fengum okkur kaffi á veitingastaðnum Taller de Tapas sem er í gamla fína bænum..fullt af ríku fólki að kaupa alltof dýra hluti. Ég pantaði mér rækjur í voða flottu pönnusvissi og fékk náttúrulega rækjurnar með öllu saman..haus og löppum. Reyndi að smakka þetta en fannst frekar ógeðslegt þegar ég var að reyna skera matinn og ljósbrúnn vökvinn vætlaði út og lappirnir stungust uppí loftið. Jæja, veðrið var nokkuð gott en ekki alltaf sól. Hún kom og fór en við fengum smá sólbað á torginu við Catedral kirkjuna. Þar er greinilega alltaf mikið um að vera á torginu og í dag var búið að byggja svið fyrir framan krikjuna og svo komnir markaðir með antík.
Við fundum æðislegar verslunargötur, ein var á C. de la Portaferissa (gata útfrá Römblunni), rosalega flottar hönnunarbúðir, töff föt og geggjaðir skór. Líka H&M og Veromoda. HM búðin var ágæt, Hrönnsu líkaði hún ekki en mér fannst hún fín. Við vorum báðar með handtösku í dag, erum búnar að vera rannsaka aðrar konur í kringum okkur og þær eru nánast allar með töskur. Við erum alltaf á ferðinni á daginn og við höfum ekkert fundið fyrir óþæginlegri athyggli eða hættu v þjófnaðar..ekki enn! Maður er líka vel vakandi og með töskuna ská yfir sig.  Höfum séð 2 handtöskur í rusli hérna rétt hjá húsinu okkar en þær voru báðar axlartöskur/ hliðartöskur, með stuttum böndum. Fundum Dalí safnið, er nánast á torginu fyrir framan Catedral kirkjuna. Þetta er alltsaman að smella saman hjá okkur:) 
ps. Sjúkrabílarnir hérna og lögreglubílarnir eru þeir háværustu sem við höfum heyrt í. Ég held að planið sé að stöðva vondu kallana með hávaða og vekja þá dauðu upp með hávaða!! Við bara verðum að grípa fyrir eyrun þegar þeir fara framhjá okkur..og ég heyri meira segja hálfa heyrn.

Engin ummæli: